Bók Mars mánaðar -Looking at Photographs

Tag: Bækur
Bók Mars mánaðar -Looking at Photographs

Þrátt fyrir að mörgum þyki kanski sem bókin sé gömul, enda gefin út fyrst árið 1973 þá er hér um klassíska bók að ræða og hún nauðsynleg í safn þeirra sem eru unnendur fagurfræðilegra ljósmynda.

John Szarkowski tók við stjórnartaumunum í Museum of Modern art árið 1962 úr hendi hins kunna ljósmyndara Edward Steichen og var leiðandi aðili í umræðu í Bandaríkjunum um ljósmyndun sem list.

Þegar hann kom til New York var ekkert gallerý í borginni sem sýndi litrænar ljósmyndir.

Szarkowski var jafnframt ljósmyndari sjálfur og þegar hann lét af störfum hjá MOMA árið 1991 snéri hann sér alfarið að listinni, en meðfram störfum í MOMA sinnti hann einnig kennslu í Harvard, Yale, Cornell og New York University.

Með því að kaupa þessa bók styrkir þú frekari útgáfu þessa vefsvæðis á sama tíma og þú lærir meira um ljósmyndun og ljósmyndasögu.

Myndir frá eftirtöldum aðilum má finna í bókinni Hill and Adamson, Cameron, O'Sullivan, Atget, Stieglitz, Steichen, Strand, Weston, Kertesz, Evans, Cartier-Bresson, Lange, Brassai, Ansel Adams, Shomei Tomatsu, Frank, Arbus and Friedlander.