Að færa myndir yfir í tölvu - Lightroom lV
Áður en lengra er haldið þurfum við að skipuleggja yfirfærslu á skrám yfir á tölvuna Hvers vegna? Einfaldlega til þess að koma í veg fyrir að það hræðilega slys gerist að við vistum eina skrá yfir aðra af því að þær hafa sama nafn. Trúðu mér það eru meiri líkur en minni ef þú átt nokkur ára gamlar myndir að þetta geti gerst. Sérstaklega ef þú hefur átt sömu myndavél lengi og hún hefur farið nokkra hringi í innbyggðu nafn og númerakerfi sínu. Slíkt kerfi endurbyggist ótrúlega hratt.
Fyrst til að geta skipulagt hlutina þurfum við möppu sem við flytjum myndirnar inn í. Við getum kallað hann upp á ensku Import. Eða bara myndir. í þessari möppu búum við til aðra möppu sem byggir á ártali og svo í þeirri möppu aðra möppu sem byggir á mánuði og síðan möppu sem byggir á degi. Því miður heldur þetta kerfi sér ekki alveg við 8.3 kerfið en það er þó hægt Kerfið er ansi gott og á að vera nokkuð skothelt með tilliti til flutnings milli ólíkra stýrikerfa. Við byggjum jú nöfnin á númerum og bandstrikum.
Þannig erum við með möppuna 2001. í henni getum við verið með mánuðina í bókstöfum ef við viljum en ég vel að nota tölur. Þannig fæ ég fyrir Júlí 07-2011. Enn ekki kominn út úr 8 stafa kerfi. í þessa möppu fara svo dagarnir. Þannig fær 7 Júlí númerið. 0707-2011 eða ef menn vilja 07072011 sem þá er innan 8 tölustafa kerfisins. Við hinsvegar brjótum það upp því við merkjum hverja möppu miðað við hvert kort sem er tæmt. Þannig fær mappa dagsins af fyrsta korti. 0707201101 eða 0707-2011-01 og svo næsta 0707-2011-02 og svo koll af kolli. Þannig komum við í veg fyrir að skrár yfirtaki aðrar ef við erum með margar myndavélar sem geta verið með áþekk nöfn eða jafnvel alveg eins.
Við getum í sjálfu sér látið forrit eins og Lightroom eða skipanir innan tölvukerfisins gera þetta fyrir okkur strax þegar við flytjum myndirnar inn á tölvuna. Ég hef hinsvegar valið að gera það ekki af öryggisástæðum, en ég er kanski bara gamaldags og enn skeptískur á gæði nútíma forrita. Ég hef hinsvegar aður fyrr lent í vandræðum bæði með Lightroom og fleiri forrit varðandi flutning og endurritun og það hafa glatast skrár.
Nú er það sem Lightroom hjálpar okkur enn og aftur. Ef við td höfum verið að taka myndir með tveimur vélum á sama tíma þá er tímaröðin nú, hugsanlega í tveimur möppum. Hér notum við Lightroom til að raða þeim í tímaröð. Veljum svo þær myndir sem við ætlum að halda og hendum hinum. Þá erum við tilbúin til að endurskýra myndirnar eftir því kerfi sem við höfum valið okkur og þar með fáum við nokkuð samfellt númerakerfi sem fyllist ekki of fljótt og verður nokkuð skiljanlegt. Hafi við ekki sett á skrárnar Metadata upplýsingar og grunn framköllun við innflutning þá er það nú sem við gerum grunn skráninguna.
Af hverju að fara þessa leið og endurskýra skrárnar. Það er til þess að gæta þess að það sé ágætis samfella í númerakerfi og einnig vegna þess að við tökum ekki afrit fyrr en við höfum keyrt út DNG skrá með framköllunar og Metadata upplýsingum inniföldum. Þá getum við tekið upprunalegu hráskrárnar og lagt til hliðar, vitandi að ef okkur vantar þær finnum við þær hratt því þær hafa sama nafn og DNG skráin og allar skrár hér eftir. Eina sem breytist er endingin sem segir okkur til um hverrar gerðar skráin er.
Nú erum við komin ansi langt í okkar kerfi en við skulum líta aðeins nánar á nafnakerfið áður en lengra er haldið.





