Að nota lita kerfi í Lightroom - Lightroom Vl
Þegar við loksins byrjum að flytja myndir inn í Lightroom að einhverju ráði höfum við að sjálfsögðu búið til einn katalóg til prufu og þá þegar búið til framköllunar ýmsar grun framköllunar aðferðir í Lightroom byggðar á því hvort um sé að ræða stúdíómyndir eða landslagsmyndir og jafnvel byggðar á lithita eftir árstíð og því hvort mynd er tekin kvölds að morgni eða um miðjan dag.
Þessar grunn framköllunaraðferðir (eða development presets) er gott að setja á þá þegar maður flytur myndir inn í Lightroom. Þær eru þó ekki algildar frekar enn annað en oft á tíðum mun betri en Lightroom grunn framköllunin, enda engin ein framköllun sem hæfir öllum myndavélum heims eða litum heims. Þannig er blár litur í landslagi töluvert frábrugðin bláum lit í USA og þarf allt aðrar stillingar. Þetta vitum við og byggjum því grunn út frá því.
Eins er með ákveðnar grunn upplýsingar í Metadata. Við vitum t.d hvað við heitum og hvar við búum og hver er okkar heimasíða. Við búum til Metadata preset með öllum þeim upplýsingum sem við getum sett á mynd og eru almenns eðlis. Þessar upplýsingar etjum við á myndirnar um leið og við flytjum þær inn í Lightroom.
Með því að nota "presets" þá getum við sparað töluvert mikinn tíma og ekki er verra ef við líka getum sett nokkur lykilorð á myndirnar um leið, lykilorð eins og land, landsvæði eða annað sem er almenns eðlis og nær yfir allar myndirnar sem verið er að flytja inn.
Þegar þetta hefur verið gert. Myndir valdar og við sitjum eftir með myndir í stjörnugjöfinni 4 og 5 er kominn tími til að taka litagjöfina í notkun.
Við erum ekki búin að nota nokkra liti til að flokka myndirnar en við byrjum á því að sjá til þess að allar myndir hafi fengið grunn framköllun og metadata. Þá getum við gefið myndunum Rauðan lit.
Næst er að gefa myndunum frekari metadata og lykilorð. Þær myndir sem við höfum fyllt út alla skráningu á gefum við litinn gulur. Nú vitum við hvaða myndir við höfum lyklað að fullu ef við skyndilega þurfum að sinna börnum oa vinum og hverfum frá vinnu í smá stund.
Næst er að framkalla myndina. Við gerum alla þá framköllun á myndinni sem við ætlum að gera í Lightroom og þegar því er lokið þá gefum við myndinni grænan lit. Við getum því á þessu stigi verið með þrjá mismunandi liti á myndunum allt eftir því hvar við erum stödd í vinnslu.
Þegar hér er komið sögu þá umpólum við myndunum yfir í DNG skrár og gefum þeim Bláan lit. Til að rifja upp af hverju á þessu stig þá er það jú vegna þess að við viljum að bæði Metadata og framköllunaraðferðir fylgi DNG skránni til frekari hliðsjónar síðar. Eins þá viljum við að bæði Bridge og Photoshop viti hvað við höfum verið að bardúsa með skrárnar okkar í Lightroom.
Þegar við höfum gert þetta er bara einn litur eftir. Það er blár og hann notum við á þær myndir sem við höfum umpólað í tif og unnið á lokavinnslu.
Með því að nota litakerfið getum við bæði flýtt fyrir okkur og auðveldað flokkun og leit ásamt því að við höfum betri yfirsýn yfir hvar við erum stödd í vinnsluferlinu. Ef allar myndir í einni möppu eru með sama litnum vitum við hvað bíður okkar með vinnslu á myndum í þeirri möppu.
Eins er ef okkur vantar sérstakar myndir og tökum bara eina mynd úr einhverri möppu eða myndatöku þá getum við með auðveldum hætti merkt við hvaða mynd hefur farið í gegnum hvaða vinnsluferli.
Litakerfið er einfalt og gott kerfi til að halda utan um vinnsluferli. Hverju maður hefur lokið og hvað maður á eftir. Það líka venur mann á að vinna kerfisbundið og freistast ekki til að vinna framköllunarhlutann fyrst og ætla svo að gera metadata hlutann seinna, sem svo aldrei verður.
Nú hef ég farið nokkuð lauslega yfir vinnsluferlis hlutann í Lightroom nú er næst að skoða erfiðasta hlutann sem er lyklun. Hann er erfiðastur í byrjunar ákvörðun en eftir smá tíma þegar menn hafa komið sér upp kerfi sínu venst hann vel.
það kíkjum við á næst.





