Einfalt nafnakerfi í ljósmyndun - Lightroom lll
Þegar kemur að því að byggja upp nafnakerfi í ljósmyndun er ekki úr vegi að reyna að gera það eins einfalt og hægt er. Því einfaldara og skýrara því betra. En áður en farið er að gefa myndskránum sjálfum nafn þarf að byggja upp nafngift á gagnageymslu og harða diska.
Þrátt fyrir breytingar í heimi forritunar og stýrikerfa reini ég að halda mig við gömlu góðu dos 8.3 kefið er kemur að nöfnum. Ég vík að því síðar af hverju og hvað það er.
Ég kem jú úr heimi filmunnar og á fullt af innskönnuðum filmum með ýmsum númerum sumu mjög skýrt öðru ekki. Þegar ég byrjaði a flokka filmukerfið þá klippti ég þær burt sem ég ætlaði að skanna og svo byrjaði ég bara á númer eitt og svo framvegis. Til að einfalda aðeins hlutina þá hef ég valið að setja filmu myndir á sér diska og stafrænt á sér diska og gefa þeim mismundandi nöfn. Að vissu leyti óþarfi en þar sem ég kem varla til með að fylla marga filmudiska í bráð þá er þetta ágætis kerfi.
Ég byrja á því að gefa fyrsta filmu diski nafnið film0001 en fyrsta stafræna diski gef ég nafnið dig00001. Með þessu kerfi á ég að geta staflað upp 99999 diskum áður en nafnakerfið springur. Með því að diskapláss stækkar og verðu ódýrar þá aftur á móti breytist þetta reglulega þegar diskar 1 - 5 verða allt í einu að diski 6 osfrv. "50 mb sem þóttu mikið eru nú orðin 2 Terabæt á betra verði svo ekki hleðst neitt gífurlega upp af diskum. ég nota svo digb0001 osfrv fyrir backup diska.
Þegar ég fór í Ameríku og Miðameríkuferðina þá ákvað ég að halda mig við 8.3 kerfið en byggja það á iso staðli fyrir lönd. Með því gat ég tekið eða haldið eftir 99999 myndum frá hverju landi og átti ég síður en svo von á því að það myndi valda mér vandræðum eða ég sprengja kerfið.
Við ætlum í áframhaldinu að hætta að hugsa um filmur í bili og snúa okkur einvörðungu að stafrænum skrám og vinnu með þær. Filmurnar eru hvort eð er vel skipulagðar i sínum möppum. Eða þannig.
Ef við eigum mikið magn stafrænna mynda og höfum enn ekki unnið í að flokka þær eða endurskýra að einu né neinu leiti getum veið verið í nokkrum vanda stödd. Þar getur í hrúgunni verið alskonar skráar nöfn allt eftir tengdum skráa og jafnvel myndavéla. Þar að auki gætu þr verið á hörðum diskum og DVD diskum eða geisla diskum um alla íbúð eða vinnuaðstöðu.
Það er hér sem gott gagnagrunns og skráningarkerfi kemur að góðum notum. Slíkt kallast oft DAM á ensku eða digital Asset management software. Til eru ýmiss slik og þó Lightroom sem við ætlum að skoða nánar sé ekki sérhæft DAM forrit sem slíkt er virkni þess á því sviði með miklum ágætum. Þartil ég skipti yfir í Lightroom þá notaði ég Portfolio frá Extensis en sumir voru hrifnari af IviewMedia Pro eða fotostation sem mér finnst um margt ansi gott forrit.
Til þess að ná tökum á skráunum sem við eigum nú hist og her, notum við gagnagrunnskerfið og fyrsta skrefið er að flytja allar myndir inn. Síðan notum við Exif til þess endurraða skránnum þannig að þær séu í tímaröð.
Slíkt er afar einfalt og gott að gera í Lightroom.
Nú hefst svo vinna við að endurskýra myndirnar miðað við það kerfi sem við höfum gefið okkur að nota. Þetta getur tekið svolítinn tíma en við gætum þess að nota nú tækifærið og henda út rusli sem við komum aldrei til með að gera nokkuð með hvort eð er í framtíð.
Við höfum ákveðið hvernig við ætlum að nefna hörðu diskana og jafnvel hvernig við ætlum að nefna skrárnar en við eigum eftir að ákveða með möppur. Hvernig ætlum við að skýra möppur og hvernig ætlum við að raða myndum í möppurnar.
Vel þekkt aðferð manna við flutning er að henda öllu í eina möppu sem heitir framköllun eða eitthvað viðlíka. Þaðan í frá fær myndin svo nafn eins og jóifrændiaðveiðauppíáhálendiíveiðivötnum.jpg
Þaðan fer svo myndin á geisladisk eða utanáliggjandi harðan disk til geymslu en mest til þess að tínast. Hver ætlar að finna aftur mynd með svona nafni.
Ef þú ætlar að mynda þúsundir mynda er þetta vonlaust kerfi að flokka og vinna með.
Okkur vantar nafn. Einfalt nafn og kerfi á nafngiftina sem hver sem er getur skilið.
Fyrst skulum við samt færa myndina yfir í tölvuna.





