Feb
01

Hver ætlar að kæra Gassa

Hver ætlar að kæra Gassa

Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.

Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.

Þá má einnig vera að hæstiréttur hafi séð hversu margsaga sakborningar í málinu voru, allt eftir því hvar eða hvernig þeir tjáðu sig, og því ákveðið að nú væri komið nóg. Verst er þó ef svo skyldi vera að hæstiréttur hafi ekki treyst sér til að taka ákvörðun í málefnum 75 greinarinar eða ekki þorað því í bili af ótta við hverjar afleiðingarnar yrðu á iðnmarkaði öllum.

Mér þykir þögn þeirrar blöðru sem hvað hæst reis til varnar lögbrjótunum hinsvegar vera sérkennileg og í raun als ekki góð. Með þögninni undirstrika þeir orð mín að krafturinn í baráttunni væri tilkominn til björgunar aðilum undan löggjöfinni en ekki vegna hugsjónar í heimi ljósmyndunar. Það er stundum jafn vont og það er gott að hafa rétt fyrir sér og í þessu tilviki væri það einstaklega vont því þá er ég hræddur um að framþróun og frekari samtal mana á milli sé í voða.

í mínum huga var reyndar málflutningurinn og framsetningin arfa slæm en það er ekki þar með sagt að grunn hugmyndin hafi þurft að vera það. En þrátt fyrir aðvaranir kusu menn að rasa um ráð fram í stað þess að setjast nú niður og ígrunda vel hvernig landslagið í ljósmyndun framtíðarinnar gæti litið út. Reyndar er ég á því að menn hefð þá heldur ekki farið fram með miklum látum eftir slíka ígrundun heldur skotið á umræðuvettvangi við alla sem hagsmuna eiga að gæta í málinu. Þegar allt kemur til alls er staðan nefnilega ekki eins slæm og menn vilja vera láta og frelsi manna settar minni skorður en ætla mætti.

Þeir sem hins vegar enn standa verst eru þeir sem vilja á samning eða eiga eftir að klára samningstíma og eiga í erfiðleikum með slíkt sökum skorts á meisturum og eða fyrirtækjum til þess að taka þá í nám. Því miður treysta ekki allir sér til þess að taka nema enda mikið ábyrgðarstarf í raun og mun meira ábyrgðarstarf en flestir gera sér grein fyrir. Það er holl lesning að lesa um meistara og skyldur þeirra gagnvart nemum, sérstaklega fyrir þá sem vilja meina að ljósmyndarar taki ekki nema vegna þess að þar sé um verðandi samkeppnisaðila að ræða.

Á nemavandræðum er einföld lausn til. Lengja skólann. Nú þegar geta nemar úr ljósmyndaskóla Leifs og Sissu farið í sveinspróf og ég get ekki fyrir mitt litla líf skilið af hverju slíkt fyrirkomulag hefur ekki verið fyrir löngu tekið upp í tengslum við Tækniskólann. Það hvílir sú skylda á yfirvöldum að sjá til þess að nemendur geti klárað nám sem þeir hafa hafið og til þess verða skólayfirvöld að beita þeim ráðum sem tiltæk eru. Ef ekki fást meistarar er einfalt mál að bæta úr því með lengingu og styrkingu náms.

salvation mountain - Slab city - Nilnd CaliforniaHún er ærandi þögn þeirra fjölmiðla sem básúnuðu fréttum um óréttlæti um Íslandsbyggð og skreyttu með skrítnum viðtölum við lögbrjótana þar sem þeir reyndu eftir mætti að sannfæra alþjóð um að þeir hafi verið að gera eitthvað allt annað en að nota myndavél, stúdíó og stúdíoljós og það að taka myndir hafi ekki verið megin mergurinn málsins enda rekið auglýsingastofu en ekki ljósmyndastúdíó. Hvoru tveggja harmoniserar hins vegar illa við það sem fram hefur komið á heimasíðum og á fésbókarsíðum þar sm auglýstar eru myndatökur og tímapantanir og svo í ofanálag er talað um atvinnuleysi af því ekki má taka myndir lengur og þá spyr ég sem fávís hæna "en hvað um auglýsingastofuna" og hvað um "vefsíðuna" sem líka var í rekstri, í hverju fólst þá sú vinna eða var það bara plat.

Ég spyr mig hins vegar líka að því hvað yfirvöld ætla að gera núna. Hver ætlar að kæra Gassa eða alla hina. Þau sem kærðu Brosbörn og Gamanmyndir hljóta að halda áfram og kæra alla aðra sem auglýsa starfsemi sína. Að öðrum kosti væru þau ekki sjálfum sér samkvæma. Það er hins vegar samkvæmt skilningi míns lögfræðings vafasamt hvort þau geti kært Gassa eða alla hina. Það er þá sem starfa við auglýsingaljósmyndun. Þetta ku byggt á hagsmunum þess sem í hlut á. Þannig gæti ég kært Gassa, þ.e ef ég væri enn starfandi á Íslandi en hefði ekki getað kært brosbörn.

Ef þeir sem eftir eru ólærðir á markaðinum hvort sem eru portret, brúkaups, barna eða auglýsingaljósmyndarar verða ekki kærðir erum við komin með enn eina stöðuna í málið. Ætla menn að láta þar við sitja að þeir sem sinna hinni svokölluðu stofuljósmyndun verði kærðir en aðrir ekki. Það er eiginlega ekki hægt því þá er komin upp ákveðin mismunun og málið allt er jú til þess gert að eyða mismunun út úr kerfinu. Búa til heilbrigt samkeppnisumhverfi þar sem allir sitja við sama borð.

Úr herbúðum þeirra atvinnuljósmyndara sem ekki voru sammála kærunni heyrist lítið annað en hnuss yfir því að kært hafi verið og annað hnuss yfir því að dæmt hafi verið. Þetta er vont. Það þarf að heyrast í öllum. Það þarf að komast upp á yfirborðið hvað liggur í hugum manna og menn þurfa að hætta að pukrast tuðandi hver með sitt í sínu horni og henda svo sprengju í hvern annann reglulega. Ef menn vilja breytingar á lögunum og eru sammála þeim áhugamönnum sem svo vilja þá ber þeim skylda til að segja það. Eins ber hinum sem á móti breytingum eru að stíga fram. Fyrst þegar það hefur skeð er kominn grunnur ða breytingum öllum til góða.

Ljósmyndarafélag Íslands er 85 ára gamalt á þessu ári. Þegar félagið varð 80 ára lýsti ég eftir því að ljósmyndarafélagið hefði forgöngu í málinu og kæmi mönnum saman til skrafs og ráðagerða um það hvernig haga mætti framtíðinni öllum til farsældar.

Um leið og eg ítreka ósk mína og óska félaginu til hamingju óska ég eftir því að aðrir nýti nú afmælisárið til að spjalla við afmælisbarnið um framtíðina og erfingjana svo enginn þurfi að kæra Gassa af því bara.