Innovit - Fingralangir frumkvöðlar.
Einn af þeim eiginleikum manna sem mestu ollu um hið íslenska efnahagshrun var siðferðisstandard þeirra sem við höfðum skammtað okkur til að ráða ríkjum í þjóðfélaginu. í raun var hér um að ræða skort á siðferði eða siðblindu á frekar háu stigi en lélegt grunn siðferði er eitthvað sem menn spyrða helst við glæpagengi og einmitt hrunverja.
ég er ýmsu vanur í hinum mikla hafsjó myndþjófnaðar og þar hafa menn sýnt af sér ýmsa siðferðisblindu í viðskiptum, en það hefur meira verið í ætt við skammtíma blindu að hætti snjóblindu en ekki slíkt viðskiptasiðferði sem ég er að verða vitni að nú. Samskipti við lögfræðinga her Kaupþings gamla voru meira að segja af betra siðferði en nú gerist. Þeir kunnu að skammast sín, það gerir ekki forstjóri Innovit.
Jón Gústafsson kvikmyndagerðarmaður með meiru varð þess áskynja að fyrirtækið Innovit væri að nota mynd af Dorrit Moussaieff, mynd sem hafði verið tekin fyrir ákveðið fyrirtæki að hans undirlagi og ætlast til að yrði bara notuð á þeirra heimasíðu.
Jón hafði því samband við Innovit en eftir að hafa reynt að hringja og ekki fengið neina svörun sendi hann þeim e-póst og bað þá um að fjarlægja myndina en tilkynnti jafnframt að hann legði það í vana sinn að senda reikning að ákveðinni upphæð ef menn væru uppvísir að svona brotum.
Svörun var vægast sagt hrokafull og í svarinu lá að Innovit mætti bara víst nota myndina ef þeim sýndist sem svo og að Jón þyrfti að sýna fram á að hann ætti myndini og ekki það að þeir þyrftu að sýna fram á að þeir mættu nota hana.
Hrokafyllra svar við myndþjófnaði hef ég aldrei augum litið og varð eiginlega sjokkeraður við að sjá hversu siðferðisbrestur manna getur verið mikill. Svo hrokafullt og ófyrirleitið var svarið að ég hef ákveðið að birta það ekki hér. Ég get hinsvegar fullyrt að Framkvæmdastjórinn þarf að ráða sér lögfróðari mann til svara en sjálfan sig.
Jón fékk sér því lögmann til aðstoðar og skrifaði fyrirtækinu bréf þar sem hann ítrekaði ósk sína um að myndin yrði fjarlægð og vísaði í höfundaréttarlög og sæmdarrétt og og í því bréfi stendur meðal annars.
Notkun á ljósmynd og öðrum verkum er njóta höfundaréttar, skv. höfundalögum nr. 73/1972, er óheimil án skriflegrar heimildar rétthafa. Ljósmyndin sem hér um ræðir er af Dorrit Moussaieff (sjá meðfylgjandi skjal). Einungis eitt fyrirtæki hefur heimild til þess að nota þessa mynd á vef sínum. Á þeim vef kemur fram að öll önnur notkun er óheimil.
Hann gaf Innovit síðan 14 daga frest til þess að ganga frá málinu án frekari eftirmála og bauð meira að segja 10% afslátt af upphæðinni. Hér var því ekkert til fyrirstöðu hjá Innovit annað en að viðurkenna villu sína og leysa málið.
Allt kom fyrir ekki og Andri Heiðar framkvæmdastjóri hefur tilkynnt að Innovit ætli sér ekki að gera neitt í málinu.
Samtök iðnaðarins, sem eru móðurskip Ljósmyndarafélags Íslands, eiga hlut í Innovit. Svo gerir einnig háskóli Íslands og fleiri og mér er spurn hvort þetta sé sú siðfræði sem menn vilja sjá í sínum fyrirtækjum. Er þetta sú siðfræði sem er kennd við Háskóla íslands eða er þetta sú siðfræði sem er kennd í glæpagengjum.
Gera verður þá skýlausu kröfu að SÍ taki málið upp á sína arma, krefji Andra um afsögn, sjái til þess að Jón verði beðin afsökunar á þessu framferði og honum bættur skaðinn. Að öðrum kosti eru samtök iðnaðarins að stuðla að og styðja höfundaréttarbrot en það gerir einnig Háskóli Íslands láti hann ekki einnig þegar til sín taka í málinu. ég vænti þess að ljósmyndarafélagið veiti þá aðstoð sem það getur.
Ég á ekki von á öðru en að Myndstef taki við málinu og fari með það alla leið. Það er sterk nauðsyn þess að kæra því slík framkoma sem Andri í Innovit sýnir Jóni Gústafsson í þessu máli minnir mest á aðferðir og siðferði mótorhjólagengja en ekki þeirra sem hér eiga að stýra framtíðar uppbyggingu frumkvöðla. Svona frekju framkomu þarf að stöðva þegar í stað og kenna mönnum lexíu.
Nema menn ætli að halda áfram að byggja hér upp þjóðfélags siðblindra frumkvöðla.
Jón hefur nú sent út ákall til myndsamfélagsins og spyr hvað skal gera. Fara innheimtuleið og dómstóla. Kæra til lögreglu, eða er til önnur leið.
Ég geri þá kröfu að Myndstef láti sig málið varða sem og SÍ og háskóli ísland og málið verði látið sigla alla leið og Andri sæta ábyrgð fyrir sína framkomu.
ég geri einnig kröfu til allra myndhöfunda þarna úti að láta sig málið varða og aðstoða Jón svo mest þeir megi. Svona framkomu verður að stöðva strax.





