Lightroom gegn Bridge – að leita að nál í heystakki.
Hvernig unnið er í forritunum Lightroom og Bridge er mikill munur. Meðan Bridge vinnur út frá möppu kerfi og krefst þess vegna nokkuð mikillar og góðrar skipulagningar og aukinnar vinnu vilji menn finna myndir seinna, sem í sjálfu sér er gott, þá vinnur lightroom út frá því að myndir geti þess vegna verið í einum haug, það finnur myndirnar samt, hafir þú unnið lágmarks forvinnu sem hjálpar til við leit.
Þannig er það að ef þú þarft að leita að skrá í Bridge þarftu helst að vita í hvaða möppu sú skrá er og láta bridge leita þar en í Lightroom þá er leit í öllum grunninum. Með einföldum hlut eins og að hafa yfir möppu t.s með heitið myndir og allar undirmöppur mynda þar undir þá er hægt að hraða nokkuð leit í Bridge og ef myndin er á diski þá finnur bridge myndina. Sé myndin ekki þegar skráð í Lightroom þá skiptir engu máli hvar myndin er. Lightroom finnur aðeins það sem forritið hefur þegar skráð. Hafir þú hinsvegar látið það skanna alla harðadiska og auka diska er ekkert að óttast, Lightroom finnur myndina en það getur tekið nokkrar sekúndur.
Í tilraun sem ég gerði þá var Bridge nokkuð fljótara að leita og finna fram eina mynd, en það var á diski þar sem eru 570.000 myndir eða meira. Lightroom var örlítið lengur að vinna en vann verkið hinsvegar betur. Meðan Bridge sýndi í loka niðurstöðu eina mynd þá sýndi Ligtroom allar þrjár útgáfurnar af myndinni sem ég vissi að voru til.
Ég þurfti að beina Bridge á réttan harðan disk til að leita á en í Lightroom sló ég bara inn skráarnafnið og Lightroom sagði mér svo hvar þessar myndir eru.
Einföld leit sem innihélt orðið Sogn skilaði mér 380 myndum þegar ég lét Bridge leita á tölvunni allri en þegar ég beindi Bridge að ákveðnum utanáliggjandi diski þá komu í leitirnar 1030 myndir sem í sjálfu sér er ágætt en þar sem að ég vissi að þær voru töluvert fleiri þá var það ekki nóg.
Sama leit í Lightroom skilaði mér 35.394 myndum af 570.587 á töluvert styttri tíma en það tók Bridge að finna sínar 1000 en Lightroom leitað í allri skránni og fann því ekki bara myndir á viðkomandi diski heldur allar þær sem ég hafði flutt inn í gagnagrunninn. Þar af leiðir fann Lightroom hinsvegar ekki þær myndir sem ég ekki hafði flutt in í skránna, en það gerði svo sem Bridge ekki heldur.
Þessi einfalda tilraun mín sýnir því að þegar kemur að leit að myndum er mun auðveldara og betra að nota Lightroom en Bridge þó eflaust megi stilla Bridge þannig af að skárra væri að leita. Þá er hraðinn og þægindin við Lightroom bara mun meiri. Þurfi menn að leita mikið að myndum er því ljóst að Lightoom er valið á því sviði.





