Apr
04

Lightroom gegn Bridge – Framköllun og loka orð.

Lightroom gegn Bridge – Framköllun og loka orð.

Þegar kemur að framköllun í Ligtroom eða Bridge virðist viðmótið í fyrstu vera töluvert öðruvísi í Lightroom en þó ber þess að gæta að bæði forrit nota sömu framköllunarvélina ACR þó hún sé utanáliggjandi í Bridge en byggð inn í Lightroom. Sú staðreynd að hún er utanáliggjandi í Bridge er tengd því að þá er hægt að opna einstakar skrár af diski óháð Bridge og flytjast eftir framköllunarferlið sjálfkrafa yfir í Photoshop.


Þau tæki og tól sem til staðar eru til litstillingar og frekari vinnslu eru mjög áþekk og nánast alveg þau sömu. Þó eru vængflipar í Lightroom finnist mér þægilegri og bæta aðgengið að fyrirframgerðum framköllunaraðferðum. Bridge aftur á móti er með framköllunarmöguleikana fyrst og fremst raðað upp í flipa í stað einfaldrar línulegrar framvindu niður á við eins og í Lightroom. Hvorugt þykir mér í raun sérstaklega þægilegt og flettingar fram og til baka á Bridge flipum eða upp og niður í Lightroom til að nálgast fínstillingar er eitthvað sem þarf að venjast strax.


Einn af stærstu kostunum við framköllunina í Bridge er að þegar skoðað er histogram og litasamsetning þá eru gildi gefin upp í RGB tölukerfi í Bridge en í prósentum í Lightroom. Sem gamall hundur sem erfitt er að kenna að sitja, þá þykir mér það ókostur í Lightroom enda alinn upp við það að lesa og stilla RGB og CMYK gildi miðað við skala frá 0 til 256 en ekki í prósentum frá 0 – 100. Það hefur því tekið nokkurn tíma að venjast þessu en er þó ekki svo vont að ekki sé það hægt. Þetta hefur hinsvvegar orðið til þess oft á tíðum að frekari finstilling litgreiningar hefur fengið að bíða þar til mynd hefur verið opnuð í Photoshop.


Eitt mikilvægasta hjálpartækið í þessu sambandi er dropateljarinn sem getur gefið punkta í mynd og hjálpað til við litgreiningu. Þetta er tæki sem ég hef notað mikið í Photoshop og nota einnig í ACR en fyrirfinnst ekki í Lightroom svo ég viti. Einungiss dropateljari til að velja grátón er til staðar og þó hann geti verið gagnlegur þá hjálpar hann ekki mikið í þessu sambandi.


Þegar kemur að grunnstillingu lithita og ljósa og skugga er verkflæði alveg eins og tæki til þess líka. Lithiti, litblær, lýsing, endurheimt, ljósfylling, sverta, birta og tónvídd eru öll til staðar ásamt tærleika stillingu litmettun og littærleika


Annað er það sem var mun betra í Bridge en Lightroom en er nú breitt, er kúrfa. Gamlingjar eins og ég elska kúrfu og án kúrfu er ekkert líf. Það er ekki vinnandi vegur að litstilla almennilega án þess að hægt sé að eiga við kúrfur á góðann hátt og þar er Lightroom nú loks að nálgast ACR. Hvorugt þessara forrita hafa þó Photoshopp kúrfuna í sér og gera því að verkum að vonlaust er að losna alveg við Photoshop með góðu móti enda þar hægt að hoppa á milli RGB og LAB litrýmda sem ekki er hægt í hinum forritunum.  Að geta átt við kúrfu eftir litarás er mikil nauðsyn sérstaklega þar sem blandað ljós er, en það krefst einnig oft lagskiptingar og lagskipting er eitthvað sem hvorugt forrit hefur.


Það að geta unnið með tónkúrfuna í myndinni sjálfri eins og í Lightroom er aftur á móti nokkur snilld sem ber að taka fagnandi. Möguleikarnir á að vinna með Tóna kúrfu eru hinsvegar ekki eins auðsjáanlegir í Lightroom og í ACR en það er aftur á móti sá möguleiki að vinna með tónakúrfu eða parametric curve eins og það heitir í ACR beint í mynd. Þessi valmöguleiki er uppi vinstramegin í ACR en er beint á borðinu sem lítill depill í Ligtroom. Með aðstoð þessara tækja má komast ansi langt í fínstillingu á litum.


Í báðum forritum er þó mun erfiðara að nýta þessa takni en í sjálfstæðum sem hafa notast við þessa tækni um tíma og sum hver virka ansi vel. Forrita viðbætur er hægt að fá fyrir Lightroom eins og Photoshop en minna er um að hælgt sé að fá slíkt fyrir Bridgge. Í raun man ég ekki eftir slíku í bili. Það er því auðveldara að bæta vinnuflæði með aukahlutum í Lightroom.


Þegar allt kemur til alls er það fyrst og fremst tilfinninga munur en ekki áherslu munur sem ræður því að mér líkar betur við Lightroom en Bridge. Samspil teikniborðs og Lightroom og forritun teikniborðsins gerir það að verkum að hægt er að setja upp skilvirkt vinnuflæði sem virkar hratt og vel þegar þarf að gera endurteknar æfingar á mörgum myndum.


Eftir að hafa unnið með ekkert nema Bridge í 9 mánuði og svo farið aftur í Lightroom hef ég á tveimur vikum sannfærst um það að Lightroom er það sem ég vil og ætla að nota áfram, ég einfaldlega vinn mun hraðar og betur með því. Ég er hinsvegar jafnframt sannfærður um það að Spessi er mér ekki sammála.


Væri ég í giftinga og portret vinnslu væri það ekki spurning að ég myndi velja Lightroom og þá tengja það við Photoshelter síðu þar sem auðvelt er að senda myndir frá Lightroom beint þangað inn. Í auglýsingaljósmyndun væri ég beggja blands með Lightroom eða Capture One en sennilega myndi ég nota sitt lítið af hverju og DPP líka eins og ég svo sem hef gert í gegnum tíðina. Það er ekkert eitt forrit sem getur allt og reiknivélar forritana skila allar mismunandi útkomu.


 


Ég hef farið á nokkru hundavaði um grunn mun Ligtroom og Bridge og vonandi hjálpar það einhverjum til að velja og skoða aðra möguleika. ‚eg sleppi  hér alveg aukahlutum eins og prenntun og vefstillingum, enda bálkurinn að nálgast bókarkafla. Ég mun hinsvegar í næstu greinum mínum skrifa um Lightroom og vinnuflæði með tilliti til lyklunar og góðs vinnuflæðis sem getur gert lífið auðveldara. Fyrir þá sem vilja læra meira á Lightroom þá mæli ég með námskeiðum Focus on Nature.