Apr
01

Lightroom gegn Bridge – grunnskráning Metadata.

Lightroom gegn Bridge – grunnskráning Metadata.

Þegar kemur að Metadata er mikilvægt að hægt sé að skrá sem mestar upplýsingar þá þegar myndir eru fluttar inn í tölvuna eða inn í skráningarkerfi. Það er einfalt mál í Lightroom að setja upp grunn Metadata upplýsingar og sjá til þess að þá þegar myndir eru fluttar inn í gagnagrunninn skráist upplýsingarnar um leið. Á þessu er hinsvegar einn varnagli. Þannig skráir Lightroom upplýsingarnar í gagnagruninn og ekki beint í myndina sjálfa og því þarf að gæta þess að vista þessar upplýsingar í skrárnar sjálfar síðar, en það gerist yfirleitt sjálfkrafa þegar farið er í Export.


Í Bridge aftur á móti þá eru upplýsingarnar skráðar í skránna sjálfa (jpg, tif og psd sem dæmi) en hægt er að stilla það þannig af, að allar upplýsingar séu skráðar í hliðarskrá sem briddge gerir yfirleitt sjálfkrafa fyrir hráskrár, nema menn velji annað. Hliðarskrár finnst mér eitthvert það leiðinlegasta fyrirbæri sem til er og ég furða mig í raun á tilvist þeirra, en þó er það skiljanlegt að mörgu leiti að ekki sé vilji fyrir hendi til að eiga að einu eða neinu leiti við upprunaskrár en láta alla vinnu fara fram í öðrum skrám og afritum. Með því er minnkuð hættan á skemmdum á upprunaskránni og breytingum á henni.


Í því tilfelli þar sem ég er að skoða endurskipulagningu og skráningu á Metadata og reyna að fá þessar upplýsingar inn í skrárnar og sjá til þess að í framtíð fylgi þær skránni, þá þarf ég að eiga möguleika á því að geta skráð upplýsingar þó svo ég flytji þær ekki fyrr en seinna inn á sjálfa myndskránna. Þannig get ég skráð upplýsingar en aðeins þegar farið hefur verið yfir skráninguna og þess gætt að allar upplýsingar séu réttar, skráð þær og hengt við viðkomandi mynd.


Þannig er tölvumiðstöð sú sem ég er að nota í öðru húsi og þar liggja allar myndirnar á læstum diski. Það er því ekki hægt að skrá neinar upplýsingar á myndirnar í gegnum Bridge. Ef ég geri tilraun til þess að skrá upplýsingarnar í Bridge þá fussar það og sveiar og neitar að gera nokkuð meðan Lightroom skráir upplýsingarnar í gagnagruninn og spyrðir við myndina. Þetta er þó nokkuð mikill kostur en menn verða þá að gæta þess að gleyma ekki að senda þær síðar út í skránna. Slíkt er hinsvegar hægt með einfaldri aðgerð.


Það væri því hægt að flytja inn allar skrárnar af þeim diski sem þær eru núna. Skrá allar upplýsingar og yfirfara að þær séu réttar. Flytja síðan Upprunaskrárnar inn á harðan disk, láta Lightroom vita að nú séu nýjar skrár með sama nafni á öðrum stað og þegar Lightroom hefur endurskannað myndirnar þá er hægt að skrifa upplýsingarnar í skránna og flytja hana svo aftur á server.


Auðvitað væri einfaldast að geta opnað fyrir það á servernum að hægt sé að skrifa í skránna en þegar verið er að gæta fylsta öryggis og reyna að vernda upprunaskrár sem best er þetta ágætis aðferð þó aðeins lengri sé. Þannig er komið í veg fyrir að gögn glatist eða skemmist.


Það er því ljóst að þurfi menn að taka til í stóru safni og endurskipuleggja vinnu og skráningu á Metadata og lykilorðum þá er Lightroom mun auðveldara í notkun af ýmsum ástæðum. Þó í báðum tilvikum sé hægt á einfaldan máta að spyrða grunn Metadata við myndir þá er Lightroom mun liðlegra þegar kemur að skráningu, flokkun og skipulagningu lykilorða (keywords) á myndir.