Lightroom gegn Bridge – viðmót og byrjun.
Það er nokkur mikill útlitsmunur á Bridge og Lightroom og á meðan Lightoom þarf að flytja myndir inn í skráningu er strax hægt í Bridge að fletta sig fram í myndamöppu og smella á til að sjá eitthvað gerast. Í báðum forritum þarf að byrja á því að vinna sig í gegnum valmyndir til að átta sig á valmöguleikum, stillingum og vinnuflæði. Að sumu leiti er auðveldara að átta sig á stillingum og vinnuflæði í Lightroom en Bridge en þegar kemur að grunn vinnu hafa bæði forrit sína kosti og galla.
Noti menn stjörnu og litakerfi í vinnuferlinu má hraða vel vinnu við úrval mynda og skipulagi yfir vinnuferlið. Þannig er gott að nota stjörnugjöf á myndir til að velja hvaða myndir skal vinna en nota svo litaskalann (labels) þegar þarf að fylgjast með því hvað hefur verið gert og hvað ekki. Einhvern veginn finnst mér það liggja betur við að nota allann skalann af flöggum og stjörnum og litum í Lightroom en i Bridge og flokkun og röðun og val mun hraðvirkara. Það krefst smá grunn hugsunar að venja sig við notkun þessara liða en þegar sett hefur verið upp verkferli fyrir þessa vinnu hraðar það allri grunn vinnunni til mikilla muna.
Einn liður í Lightroom sem mér finnst vera fram yfir Bridge er það að geta sett grunnskipanir eins og Metadata og grunn framköllun á myndirnar um leið og ég hleð þeim inn í gagnagrunninn. Það er að vísu ekkert flókið mála í Bridge að velja möppu og skella á grunn framköllun fyrir allar myndir í þeirri möppu en þá þarf að velja hverja möppu fyrir sig og gera aðgerðina, á meðan Lightoom getur verið að malla í bakgrunni og þú að leika þér á netinu á meðan.
Það er að sjálfsögðu hægt að setja á ákveðnar sjálfvirkar stillingar í báðum forritum og með stillingum á tölvu en þetta liggur ljósara fyrir í Lightroom en í Bridge og mun auðvelda aðgengi þá þegar fyrstu yfirferð yfir möguleika forritsins hafa verið skoðaðir.
Þannig er lítið merki með myndavél í vinstra horni Bridge sem heitier „get images from camera“ en ef engin vél eða kort er tengt við tölvu virkar þetta ekki til að flytja inn möppur og setja á þær sjálfvirkar aðgerðir. Þegar aftur á móti myndavél eða kortalesari eru til staðar þá er hægt að flytja myndir af korti inn á tölvu og gera allar sjálfvirkar metadata og framköllunaraðferðir alveg eins og í Lightroom.
Það má því segja að þegar myndir hafa verið teknar og eru fluttar inn á tölvu af korti eða tengdri myndavél sé fyrst og fremst stigsmunur á því hvernig unnið er en ekki eðlismunur. Fyrir aðila eins og mig sem treystir ekki forritaflutningi á myndum inn á tölvu af þekktri ástæðu galla við slíkt þá gerir sú staðreynd mér lífið aðeins leiðara en gefur um leið meiri löngun til að nota Lightroom en Bridge til að flýta fyrir á seinni stigum.
Hér verða aðilar að finna hver fyrir sig hvaða verkferli hentar þeim best.





