Mikilvægi góðs vinnuflæðis - Lightroom ll
Þar sem allar myndir mínar fara hvort eð er í gegnum Photoshop og ég tel það algerlega ómissandi í allri loka vinnu og jafnvel meira til, af hverju þá ekki að nota Photoshop og Bridge?. Ég ræði það í öðrum greinarflokki en eftir að hafa notað og prófað ýmiss forrit varð loka niðurstaða mín að Lightroom væri rétta verkfærið fyrir mig þó ekki væri það fullkomið frekar en önnur forrit.
Eftir að hafa verið á miklum þvælingi og ferðalögum undanfarin ár er mikilvægi góðs vinnuflæðis nú enn skýrara fyrir mér en áður og mun mikilvægara en margur telur. Það að venja sig strax á að setja sem mestar upplýsingar við hverja mynd um leið og hún hefur verið flutt inn á tölvu getur verið ótrúlega tímasparandi seinna og hjálpað mikið til í gloppóttu minni. Sú staðreynd að ég hóf að gera þetta hefur nú á seinni tímum veitt mér ómælda gleði og ánægju.
Ég get geymt myndvinnsluna þar til síðar ég gleymi henni ekki og verð vonandi bara betri en hafi ég geymt lyklun og metadata skráningu get ég átt í mestum vandræðum við að finna út hvar mynd var tekin og hvaða lyklun skal gefa myndum, nú fyrir utan það að ég á í erfiðleikum með að finna slikar myndir.
Ef allir forritarar hefðu fréttaljósmyndara í huga eða þá sem eru mikið á þvælingi þá væru til nokkur forrit sem væru fullkomin. Svo er hinsvegar ekki og flest forrit sem eru hugsuð til nota í fréttaljósmyndun snúa fyrst og fremst að myndvinnslu og skráningu en ekki að gagna safni, enda hefur það svo sem reynst töluvert flókið og þungt í vöfum að hafa hvoru tveggja.
Hér er vinnuflæði eins og ég vildi sjá það sett upp miðað við núverandi reynslu.
* Taka mynd.
* Hlaða myndinni inn á tölvu.
* Grunn flokkun og henda rusli. Hér gildir að vera ískaldur og krítiskur.
Næst er það endurskýrn á myndum eftir að ég hef hent myndum.
Þá komum við að mikilvægasta atriðinu Metadata. Hér vil ég geta sett metadata og lykilorð og vitað að þau fylgja hráskránni.
* Þá komum við að grunn framköllun og alveg eins og með metadata vil ég að framköllunin geti fylgt skránni til framtíðar.
* Þegar hér er komið sögu er rétt að taka afrit. Ég umpóla myndunum yfir í DNG svo ég hafi allar upplýsingar en legg upprunalegu hráskrárnar til hliðar á disk sem ég síðan er ekkert að hreyfa meir nema í neyð eða ef ég vil framkalla þær í öðru forriti en Lightroom. Ef ég er á ferðalagi brenni ég líka hráskrárnar á dvd disk og sendi heim. Þannig að ef allt hverfur frá mér á ferðalagi þá er allavegana til vara afrit heima. í frekara mæli er ég farinn að nota vefræn geymsluhólf en kostnaður og hraði við upphleðslu er enn smá vandamál.
* Þegar hér er komið sögu og myndir hafa verið lyklaðar, þá vel ég þær myndir sem ég ætla að vinna frekar að svo stöddu og klára þá vinnu áður en ég umpóla myndunum nú enn og aftur en í þetta skiptið yfir í Tif 16 bita.
Þetta er loka útgáfan og hér fer fram síðasta myndvinnslan, snyrting og pökkun
* héðan get ég svo valið að umpóla myndum enn og aftur fyrir net og eða sent myndirnar þangað sem þær svo eiga að geymast, prentað þær út eða hvað það sem ég ætla að gera við myndirnar hér eftir.
þetta hljómar allt voðalega einfalt en það getur verið meira en að segja það að halda sig við þetta skipulag og fá það til að virka.
Við kíkjum nánar á ferlið í komandi greinum.





