Myndvinnsla með Adobe Camera Raw og Bridge CS5
Flestir vita að Adobe Photoshop er vinsælasta og öflugasta myndvinnsluforrit á almennum markaði. Forritið er fyrir löngu orðið órjúfanlegur þáttur í daglegri vinnu ljósmyndara. Færri vita að annað myndvinnsluforrit, Camera Raw, fylgir með í Photoshop-pakkanum ásamt skipulagningarforritinu Bridge.
Camera Raw er mjög heilsteypt og öflugt verkfæri til vinnslu stafrænna ljósmynda sem upphaflega var þróað til vinnslu RAW-mynda en getur nú líka unnið með jpg og tiff myndir. Sá eiginleiki gerir það að verkum að forritið hentar byrjendum jafn vel og fagfólki. Hægt er að lagfæra liti og tón í myndum hvort heldur sem er í heild sinni eða á einstökum svæðum. Hægt er að vinna margar myndir samtímis, gera þær svarthvítar og margt fleira. Í flestum tilfella er hægt að fullvinna myndir á skilvirkan hátt í Camera Raw án þess að þurfa að opna þær í Photoshop.
Raunar deilir Camera Raw svo mörgum eiginleikum með öðru vinsælu myndvinnsluforriti, Lightroom, að segja má að þessi forrit séu eins og samvaxnir tvíburar. Öll sömu myndvinnsluverkfærin eru til staðar í báðum forritum og sami hugbúnaður sér um alla litameðhöndlun í báðum tilfellum. Saman gera Camera Raw og Bridge flest það sem Lightroom gerir. Og jafnvel gott betur.
Bridge er öflugt skipulagningarverkfæri sem samtvinnast mjög vel við Camera Raw og er t.d. jafnvel hægt að breyta stillingum mynda beint í Bridge án þess að þurfa að opna þær í Camera Raw. Forritið býður upp á ýmsa möguleika á því að skipuleggja ljosmyndir, merkja þær með lykilorðum, flokka í möppur, myndasöfn og myndabunka o.s.frv. auk þess að búa til heimasíður með myndum og raða mörgum myndum á eina örk til útprentunar.
Námskeiðið leggur áherslu á hratt og sveigjanlegt vinnuflæði mynda allt frá innflutningi þeirra í tölvuna að fullunnum og skipulega flokkuðum myndum. Adobe Bridge CS5 og Adobe Camera Raw 6.x forritin eru hluti af Adobe Photoshop CS5. Þeir sem ekki eiga Photoshop CS5 (og þ.a.l. ekki Bridge og Camera Raw) geta sótt prufueintak á heimasíðu Adobe. Adobe Bridge fylgir með í pakkanum og virkar áfram eftir að 30 daga prufueintakið af Photoshop rennur út.
Sýnikennsla fer fram í Apple Mac OS X umhverfi en þar sem forritið virkar eins í PC umhverfi hentar námskeiðið því jafnt PC notendum sem Macintosh notendum. Umfjöllunaratriði eru tilgreind hér að neðan.
Adobe Camera Raw
Allar almennar stillingar í Camera Raw • Svæðisbundnar tón- og litabreytingar • Clone/Healing • Targeted Adjustment Tool • Sýndarskurður (Virtual Crop) • Yfir/undirlýsingar aðvörun • Histogram • Lagfæra einstaka liti • Input-skerping og maskar • Svæðisbundin skerping • Output- skerping • Fínstilling myndavéla (Calibration) • Camera Raw og jpg/tiff • Forstillingar (presets) • Notkun forstillinga beint í Bridge • Snapshots • Camera Raw og Smart Objects • Smart Object innihaldi býttað út í PSCS5 • Smart Filters • Sértæk Raw skjöl og XMP „hliðarvagnar‟ eða DNG • Litarými fyrir vinnuflæði, stærð, upplausn (Workflow settings) • Breyta myndum í jpg/tiff/psd/dng í Camera Raw • Svarthvítt í Camera Raw • Tónað í Camera Raw • Tvítóna myndir • Linsu lagfæringar • Vista hrámyndir sem jpg, dng, psd eða tiff
Adobe Bridge CS5
Innflutningur mynda með Bridge/Photo Downloader • Notendaviðmót • Workspace • Skipulag í Bridge • ITPC metadata • Lykilorð (Keywords) • Lykilorðaflokkar og einstök lykilorð • Stjörnugjöf og litamerking • Lúpa til að kanna fókus o.þ.h. • Yfirfara myndir í fullri skjástærð • Stækka myndir í 100% í fullri skjástærð • Yfirfara myndir í myndahringekju • Myndabunkar (Stacks) • Sjálfvirkir myndabunkar fyrir panoramamyndir og HDR • Vefsíður með myndum í Bridge • Favorites • Collections/Smart Collections • Margar myndir settar á eina prentörk • Bridge og gerð panoramamynda • Breyta myndum í jpg/tiff/psd með Image Processor • Export
Kennari: Sigurður Stefán Jónsson, ljósmyndari í Fotografika
Tími: þriðjudaginn 1. mars og fimmtudaginn 3. mars kl. 18:00 - 21:00, alls 9 kennslustundir.
Verð: 24.500 kr.
Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn), stofu 309 á 3. hæð til hægri.




