Það má með sanni segja að á síðasta Photokina hafi ein myndavél komið öllum nokkuð mikið á óvart, en það var Fuji Finepix X100 vélin sem er stafræn "rangefinder" vél með áfastri linsu. Vélin fór vel í hendi og lofar alveg einstaklega góðu. Eiginlega svo góðu að langt er síðan löngun hefur verið jafn mikil í nýja myndavél. Þeir sem eru vanir að handleika vélar sem þessar eins og gamlar og góðar Canon vélar af svipaðri stærð verða örugglega áfjáðir að ná sér í eina. Leica mönnum þykir Fuji X100 kanski aðeins of lítil og létt og ókostur að ekki skuli hægt að skipta um linsu. En hvað með það, nú er hægt að panta eina........mig langar að fræðast nánar