áhugaljósmyndarar

Nov
27

Hroki og hleypidómar

Það verður að teljast af hinu góða þegar ungir aðilar vilja storka því sem þeim finnst vera staðnað kerfi.........mig langar að fræðast nánar

Feb
01

Hver ætlar að kæra Gassa

Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.........mig langar að fræðast nánar

Kynningarfundur í ljósmyndafélaginu Fókus

Dagsetning: 
Tue, 08/02/2011 - 20:00 - 22:00

Tími 8. febrúar · 20:00 - 22:00


Staður Faxafeni 12, húsnæði Skákfélags Reykjavíkur


Nánari upplýsingar Fókus er félag áhugaljósmyndara, byrjenda sem og lengra kominna.


........mig langar að fræðast nánar

Nov
20

Listin að þekkja sinn vitjunartíma

Það er engin tilviljun sú orrahríð sem staðið hefur yfir í umræðunni um ljósmyndun og framtíð hennar nú undanfarið. Til eru einstaklingar sem haldnir eru slíkri vanmáttarkennd í sköpun sinni að þeir geta ekki eirt öðrum þess að hafa það sem þeir ekki hafa. Slíkir einstaklingar hafa fátt eitt fram að færa og nýta því öll tækifæri til að rífa niður það sem aðrir hafa áður uppbyggt.í slíkum tilvikum sem með þessa einstaklinga, getur það reynst nauðsynlegt að skella sér í skítagallann og moka flórinn. Ég lét mig hafa það að skella mér í skítkastskeppni við viðkomandi aðila til þess að sýna fram á að þeim gengur ekki gott eitt til. í versta falli gengur þeim það eitt til að eyðileggja starfsumhverfi ljósmyndunar.........mig langar að fræðast nánar

Nov
19

Listin að sjá aðeins það sem maður vill heyra

Listin að sjá aðeins það sem maður vill heyra

Þeir félagar sem teljast til forráðamanna HUL eru undarlegur trúarhópur. Að hætti sértúararsafnaða velja þeir að draga aðeins fram það sem þeir vilja heyra í umræðunni og í æsingi sínum ná þeir ekki að skilja orð af því sem ég segi eða hef sagt. Þannig kalla þeir ítrekað eftir rökstuðningi fyrir þeirri skoðun „minni“ að ljósmyndun eigi heima undir iðnlöggjöfinni. Vandamálið er bara það að ég hef ALDREI sagt að þar eigi hún heima um aldur og æfi.

Ég ætla nú að gera tilraun til að draga saman  í einföldu máli hvað ég hef sagt í von um að þeir skilji það. Félagar lesið nú hægt. Stafið ef þið þurfið. Fáið aðstoð frá þeim sem skilja ef þið ekki skiljið.

Umfram allt ekki gera mér upp skoðanir þó þið skiljið ekki hvað ég skrifa.

 ........mig langar að fræðast nánar

Nov
18

Listin að leggja fram stefnumótun

Tag: áhugaljósmyndarar

Sjónarmiðum barst bréf sem það telur vera úr herbúðum forráðamanna HUL. í því er nákvæm útlistun á stefnumótun og skoðun forráðamannanna á málefnum ljósmyndunar á íslandi og hvað beri að gera í málefnum menntunar, starfsöryggis, listar, sýningarmálum, fræðslumálum,neytendavernd, gæðastaðlamálum, endurmenntun,réttindamálum og höfundaréttarmálum.Ritstjórn telur skjalið varp mjög skýru ljósi á skipulag Hul og framtíðar sýn forráðamanna þess á ljósmyndaumverfinu og að hverju ber að hyggja til að skapa heilbrigt vinnuumhverfi.  í sönnum wikileaks anda hefur ritstjórn ákveðið að birta innihald bréfsins í heild sinni svo allir geti glöggvað sig betur á málflutningi og stefnumótun forráðamanna HUL.

........mig langar að fræðast nánar

Nov
18

Listin að finna ekki sjálfan sig

Tag: áhugaljósmyndarar

Þeir félagar í Hul sem stóðu að hinni stórundarlegu myndatöku seríu nú um síðastliðna helgi hafa nú snúið við blaðinu og sennilega tekið upp slagorðið :„Frelsi til að þagga niður í sjónarmiðum“ . Það er vel, því þess minna sem þeir skipta sér af ljósmyndun því ánægðari verð ég .

Á meðan á þessum hræringum stendur fáið þið hin vonandi næði til að ræða ljósmyndun á viturlegri grunni en gert hefur verið. Það er þörf á því að skoða ljósmyndun frá ýmsum sjónarhornum náms og námsframboðs, höfundaréttar, stéttarvitundar, lista og menningar, tækni og nýjunga. Ljósmyndun er nefnilega víðtækari hluti af okkar lífi en margur gerir sér grein fyrir.

........mig langar að fræðast nánar

Nov
16

heimsins undarlegustu áhugaljósmyndarar

Í síðastliðinni viku tók umræðan um ljósmyndun sem lögverndaða iðngrein á sig einhverja þá sérkennilegustu mynd sem búast mátti við. Það má vel skilja þá sem vilja ræða það hvort núgildandi form laga, réttar og kennslu, sé endilega það rétta og hvort hægt sé að fara aðrar og betri leiðir til að færa ljósmyndaumhverfið fram á við.

 Umliðna helgi tóku hinsvegar félagar í HUL sig til og gáfu gestum og gangandi (eða hverjum sem þeir gátu neitt inn í myndver) eitt stykki myndatöku afhenta á diski.

........mig langar að fræðast nánar

Nov
07

Listin að vera áhugamaður um list

Tag: áhugaljósmyndarar

Það er stór hópur áhugaljósmyndara sem hefur einstaklega mikla ástríðu fyrir ljósmyndun, ljósmyndunarinnar vegna, og lítur á hana sem verðuga listgrein. Þessi hópur hefur því miður orðið undir í umræðunni um ljósmyndun og réttindi, enda hefur hann sett fram spurningar sem eru forsvarsmönnum hagsmunasamtaka áhugaljósmyndara lítt að skapi.Þessi hópur hefur að einhverju marki reynt að vekja máls á margbreytileika ljósmyndunar en átt erfitt uppdráttar því honum hefur verið stillt upp við vegg og við hann sagt að annað hvort séu menn með eða á móti. Ekkert svigrúm gefið til að spyrja sig,:" en hvað ef?". ........mig langar að fræðast nánar