Fagmennska

Feb
01

Hver ætlar að kæra Gassa

Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.........mig langar að fræðast nánar

Jan
26

Viðskiptavinurinn á engann rétt

Umræðan um geisladiska og hvort ljósmyndarar eigi að afhenda myndir á slíku formi skýst reglulega upp á yfirborðið. Gallin við þá umræðu er að hún er frekar vanþróuð og er frekar föst í annaðhvort eða farinu. Málið er hins vegar ekki eins einfalt og það sýnist hjá þeim sem segja að viðskiptavinurinn eigi að ráða og eigi rétt á því að fá allar myndir afhentar.Krafan um að fá allar myndir afhentar var ekki til í daga filmunnar. Einfaldlega vegna þess að sú krafa þýddi aukin kostnað fyrir viðskiptavininn þar sem hún þýddi meiri vinnu fyrir ljósmyndarann. Báðir aðilar voru því sammála um að afhentar yrðu aðeins bestu myndirnar og það var oftar en ekki talan 10 eða 12 sem um var rætt.........mig langar að fræðast nánar

Nov
07

Listin að skjóta sjálfan sig í fótinn svo höfuðið sé af

Tag: Fagmennska

Með dómi hæstaréttar í passamyndamálinu svokallaða var lagður grunnur að legsteini ljósmyndunar eins og við þekkjum hana á íslandi. í dómnum var sú skoðun sett fram að ekki þyrfti fagmennsku til að taka gott portret og því gæti skúringardama sýslumanns alveg eins tekið að sér að taka passamyndir eins og útlærður ljósmyndari.Hagsmunasamtök áhugaljósmyndara hafa svo tekið þennan dóm og þá skoðun sína að skúringardaman sé vel að því komin að kallast ljósmyndari  og að hver sem er eigi að geta gert tilkall til þess eins og hún, að kalla sig ljósmyndara án þess að hafa nokkuð til þess unnið.........mig langar að fræðast nánar

Nov
05

Listin að éta upp sjálfan sig

Tag: Fagmennska

Ég gæti kanski skilið kröfu ungra áhugaljósmyndara ef hún stæði til þess að geta veitt betri þjónustu með meiri gæðum, á sanngjörnu verði.  Eina krafan sem heyrist er hins vegar sú krafa að geta veitt fólki val um ódýrari þjónustu og því verður mér spurn :“Hver leggur upp í ljósmyndun  með þann metnað að leiðarljósi  að verða bónus ljósmyndari „

........mig langar að fræðast nánar

Nov
02

"..ljósmyndarar á þessu kaliberi.."

Ég hef svo sem enga sérstaka ánægju af því að vera að kljást við Prófessor Guðmund Odd en þar sem hann ákvað að hafa afskipti af málefnum ljósmyndara á fleiri en einum vígstöðvum get ég ekki varist því að furða mig á ýmsu sem hann hefur látið út úr sér í þessu sambandi.

Það er vel að verja vini sína, en menn verða þó að gæta sín að hugsa kanski málið til enda, og vara sig á því að láta ekki draga sig niður í svað vitlausrar röksemdarfæslu sem skaðar þann orðstýr sem af manni fer. ........mig langar að fræðast nánar

Oct
31

Er ljósmyndun list ?

Í mínum huga hafa fáir lagt fram sterkari rök fyrir því að ljósmyndun sé iðngrein en ekki list, en sú manneskja sem ætlaði einmitt að sanna hið gagnstæða. Lýsing hennar á framleiðsluferli og sölu þeirrar vöru sem hún hafði á boðstólum er í stíl við iðnhönnuð sem framleitt hefur sjampóglas og lýsir ágæti þess fyrir neytandanum."....Ég tók einungis að mér að framleiða þá vöru sem ég auglýsti á heimasíðu minni og ekkert annað. Það gera ekki "hefðbundnar" ljósmyndastofur........ "........mig langar að fræðast nánar

Oct
31

"..ég kann að flassa báðum ljósunum.."

Tag: Fagmennska, lýsing

það hefur fátt eitt í umræðu undanfarinna daga valdið mér eins miklum heilabrotum og sú setning sem skapar titilinn á þessari grein.  Setningin er fengin frá manneskju sem vill telja sig síst minni fagmann í ljósmyndun en iðnlærða ljósmyndara . Ljósmyndun snýst merkilegt nokk um ljós, val á lýsingu, linsur, ljósbrotsfræði ,ljósop, hraða og stjórn á öllu saman eftir því hvaða tilfinningu á að skapa í myndinni. Ljósmyndun snýst einnig og ekki síður um skugga og stjórn á þeim. ........mig langar að fræðast nánar

Oct
29

Það er létt að verða ljósmyndari

Maður skildi ætla að það sé lítið og létt verk að verða ljósmyndari. Eina sem til þurfi sé að kaupa sér myndavél, tölvu og láta svo prenta nafnspjöld og þá hrúgist inn verkefni og tilnefningar til heimsfrægðar. Þannig hljómar málflutningur þeirra sem hæst hafa gegn lögvernduninni þessa dagana.

Mér finnst þetta gróf móðgun við greinina og sérstaklega við ljósmyndara eins og Ragnar Axelsson sem ítrekað hefur lagt líf sitt að veði til þess að ná þeim meistaratökum á ljósmyndun sem hann nú eftir 35 ára þrotlausa vinnu gleður okkur með.

 ........mig langar að fræðast nánar

Apr
21

Villtu nammi væna

Til þess að bera virðingu fyrir öðrum verða menn að bera virðingu fyrir sjálfum sér. Beri menn ekki virðingu fyrir sjálfum sér og eigin ágæti gerir það heldur ekki neinn annar.Það er ekkert sjálfgefið að aðilar sem ætla eða vilja birta myndir fái þær ókeypis um leið og þessir sömu aðilar selja pláss undir auglýsingar á síðum sínum og eða í blöðum.........mig langar að fræðast nánar