Forrit

Apr
11

Að nota lita kerfi í Lightroom - Lightroom Vl

Tag: Adobe, Forrit, Lightroom, Myndasöfn

Þegar við loksins byrjum að flytja myndir inn í Lightroom að einhverju ráði höfum við að sjálfsögðu búið til einn katalóg til prufu og þá þegar búið til framköllunar ýmsar grun framköllunar aðferðir í Lightroom byggðar á því  hvort um sé að ræða stúdíómyndir eða landslagsmyndir og jafnvel byggðar á lithita eftir árstíð og því hvort mynd er tekin kvölds að morgni eða um miðjan dag.........mig langar að fræðast nánar

Apr
10

Að skýra myndir góðu nafni - Lightroom V

Tag: Adobe, Forrit, Lightroom, Myndasöfn

Það er mikilvægt áður en lengra er haldið að skoða gaumgæfilega hvaða aðferð þú vilt beita til að endurskýra skrárnar þínar og það er ekki verra að ráðfæra sig við bókasafnsfræðing eða einhvern sérfræðing í skjalavörslu í því sambandi. Gæta verðu þess þó að sá aðili flæki ekki kerfið of mikið. ........mig langar að fræðast nánar

Apr
09

Að færa myndir yfir í tölvu - Lightroom lV

Tag: Forrit, Lightroom, Myndasöfn

Áður en lengra er haldið þurfum við að skipuleggja yfirfærslu á skrám yfir á tölvuna Hvers vegna? Einfaldlega til þess að koma í veg fyrir að það hræðilega slys gerist að við vistum eina skrá yfir aðra af því að þær hafa sama nafn. Trúðu mér það eru meiri líkur en minni ef þú átt nokkur ára gamlar myndir að þetta geti gerst.........mig langar að fræðast nánar

Apr
09

Einfalt nafnakerfi í ljósmyndun - Lightroom lll

Tag: Forrit, Lightroom, Myndasöfn

Þegar kemur að því að byggja upp nafnakerfi í ljósmyndun er ekki úr vegi að reyna að gera það eins einfalt og hægt er. Því einfaldara og skýrara því betra. En áður en farið er að gefa myndskránum sjálfum nafn þarf að byggja upp nafngift á gagnageymslu og harða diska.........mig langar að fræðast nánar

Apr
06

Mikilvægi góðs vinnuflæðis - Lightroom ll

Tag: Forrit, Lightroom

Þar sem allar myndir mínar fara hvort eð er í gegnum Photoshop og ég tel það algerlega ómissandi í allri loka vinnu og jafnvel meira til, af hverju þá ekki að nota Photoshop og Bridge?.........mig langar að fræðast nánar

Apr
06

Gott vinnuflæði í ljósmyndun - Lightroom l

Tag: Forrit, Lightroom

Það er sjálfsagt enginn einn hlutur jafn mikilvægur í nútíma ljósmyndun og gott vinnuflæði. í gamla daga (og svo sem enn) þegar menn handléku filmu var með tiltölulega auðveldum hætti hægt að skipuleggja filmusafnið löngu eftir að myndir voru teknar. á þeim tíma tóku ljósmyndarar heldur ekki þúsundir mynda á einum degi eins og nú gerist svo auðveldlega.........mig langar að fræðast nánar

Apr
04

Lightroom gegn Bridge – Framköllun og loka orð.

Tag: Forrit, Lightroom, Myndasöfn
copyright: 

Í þessari mynd fór öll framköllun fram í Lightroom og aðeins smá snyrting var gerð undir lokin í Photoshop.

Þegar kemur að framköllun í Ligtroom eða Bridge virðist viðmótið í fyrstu vera töluvert öðruvísi í Lightroom en þó ber þess að gæta að bæði forrit nota sömu framköllunarvélina ACR þó hún sé utanáliggjandi í Bridge en byggð inn í Lightroom.........mig langar að fræðast nánar

Apr
01

Lightroom gegn Bridge – grunnskráning Metadata.

Þegar kemur að Metadata er mikilvægt að hægt sé að skrá sem mestar upplýsingar þá þegar myndir eru fluttar inn í tölvuna eða inn í skráningarkerfi. Það er einfalt mál í Lightroom að setja upp grunn Metadata upplýsingar og sjá til þess að þá þegar myndir eru fluttar inn í gagnagrunninn skráist upplýsingarnar um leið. Á þessu er hinsvegar einn varnagli. Þannig skráir Lightroom upplýsingarnar í gagnagruninn og ekki beint í myndina sjálfa og því þarf að gæta þess að vista þessar upplýsingar í skrárnar sjálfar síðar, en það gerist yfirleitt sjálfkrafa þegar farið er í Export.

........mig langar að fræðast nánar