Ég er einn af þeim sem hef mjög gaman af þáttum um slungar löggur í leit að mis slungnum bófum. Ég hinsvegar hef andstyggð á því ameríska æsiveruleikasjónarpi sem birtist í þáttum eins og Cops, sem byggjast fyrst og fremst á því að misnota fólk og þess ömurlegu aðstæður.Einhverjir kynnu að segja að fólk hefði komið sér í slíkar aðstæður sjálft og mikið má það vera rétt en það gefur hvorki mér né þér rétt til að fara með fallnar sálir sem hvert annað réttindalaust úrhrak. Ekki gefir það heldur lögreglu aukin rétt til að hengja menn á torg og sýna þrátt fyrir að menn hefðu misstigið sig á vegi dyggðanna.........mig langar að fræðast nánar