Sú spurning kemur reglulega upp hvort nauðsynlegt sé að merkja myndir
sem settar eru á alnetið. Sumir berra því við að slík merking sé svo
ljót að þeir vilji ekki skemma myndirnar á þann hátt. Þetta er al röng
hugsun.
Ef skoðuð eru málverk þá má yfirleitt sjá á þeim merkingu. Merkingin er jú auðkenni listamannsins og hans staðfesting eða undirskrift á því að hann hafi gert verkið. Þó til séu góðir falsarar þá hafa einmitt slíkar undirritanir verið til þess fallnar að vekja athygli manna á því að kanski væri ekki allt í lagi.
Undirskrift á ljósmyndum ein og sér kemur ekki í veg fyrir að þeir sem eru bíræfnir steli myndum. Það get ég vitnað um. Menn ganga á stundum ótrúlega langt í því að reyna að fela stuldinn með því að þurrka út undirskriftina. Þar með hafa þeir líka gert sig seka, án vafa, um lögbrot og kláran þjófnað. Bara þess vegna ættu menn að merkja myndirnar.........mig langar að fræðast nánar