Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.........mig langar að fræðast nánar