Listin að sjá aðeins það sem maður vill heyra
Þeir félagar sem teljast til forráðamanna HUL eru undarlegur trúarhópur. Að hætti sértúararsafnaða velja þeir að draga aðeins fram það sem þeir vilja heyra í umræðunni og í æsingi sínum ná þeir ekki að skilja orð af því sem ég segi eða hef sagt. Þannig kalla þeir ítrekað eftir rökstuðningi fyrir þeirri skoðun „minni“ að ljósmyndun eigi heima undir iðnlöggjöfinni. Vandamálið er bara það að ég hef ALDREI sagt að þar eigi hún heima um aldur og æfi.
Ég ætla nú að gera tilraun til að draga saman í einföldu máli hvað ég hef sagt í von um að þeir skilji það. Félagar lesið nú hægt. Stafið ef þið þurfið. Fáið aðstoð frá þeim sem skilja ef þið ekki skiljið.
Umfram allt ekki gera mér upp skoðanir þó þið skiljið ekki hvað ég skrifa.
........mig langar að fræðast nánar