copyright:
Kristjan Logason
Ef það væri verið að markaðssetja höfundarétt þá er ljóst að skoðun mín á Creative commons væri töluvert önnur en hún er í dag. Alveg frá fyrstu tíð að þessi óskapnaður kom fram hef ég haft á honum illan bifur og það fjölgar hratt í þeim hópi sem teljast til andstæðinga CC enda hefur það sannast að tilurð þes er ekki til að einfalda hlutina, nema fyrir þá sem vilja fá myndir ókeypis. Fyrir alla aðra flækir creativ commons tilverunaÁstæða þess að ég hef haft svona illan bifur af CC er að í fyrstalagi þá sá ég ekkert athugavert við gamla góða höfundaréttarkerfið ne heldur sá ég nokkuð athugavert við það þó menn þyrftu að bera sig eftir björginni við að fá birtingaleifi. í annan stað þá hef ég aldrei á minni æfi séð aðra eins markaðsherferð farna til handa höfundarétti eins og CC og þegar ég fór að grenslast fyrir um þá sem að baki stóðu fóru að renna á mig tvær grímur. Hví eru ríkustu netviðskiptamenn heims, sem engum vitanlega eru að skapa neitt listrænt, að spandera svona miklum peningum í að markaðsetja þennan óskapnað.........mig langar að fræðast nánar