Ljósmyndasaga

Christer Strömholm og Antik magasinet

Antik magasinet í sænska sjónvarpinu flutti í síðastliðinni viku þátt sem meðal annars fjallar um hinn þekkta ljósmyndara Christer Strömholm sem segja má að hafi náð heimsfrægð með myndaseríu sinni um kynskiptinga í París. Christer var götuljósmyndari og flakkari og um margt mjög ólíkur öðrum sænskum og skandinavískum ljósmyndurum.


........mig langar að fræðast nánar

Feb
03

Listin að lesa ljósmynd

copyright: 

Kristjan Logason

Ljósmynd er ekki bara eitt eða annað og oft getur leynst meira í einni mynd en margan grunar. Þannig er það ekki alveg rétt að ljósmynd segi allan sannleikann og á stundum þá er jafn athyglivert hvað ekki er á myndinni eins og það hvert innihald myndarinnar er.

Það er sem betur fer orðið vinsælla en áður var, og gleður mig mikið, að spá í ljósmyndir og hvað býr að baki ljósmynd. Slíkt er eitthvað sem ætti að vera skildukennsla í skóla samhliða því að lesa í aðra list. Ungir áhugaljósmyndarar  jafnt sem þeir eldri eru farnir að leggja fram spurningar eins og það hvernig menn lesi í ljósmynd og hvernig menn greini þær og leggi sinn skilning í myndir.

........mig langar að fræðast nánar

Eru endalok alheims ofin í endalok Kodak

Það eru ekki fagrar sölutölurnar sem hafa verið birtar fyrir stóru nöfnin í heimi ljósmyndunnar og mörg þekkt nöfn úr ljósmyndasögunni sem skipt hafa um eigendur á síðustu árum. Agfa, Mamiya, Ilford og síðast Hasselblad sem komið er úr Sænskri eigu yfir í hendur Japanskra eigenda.........mig langar að fræðast nánar

Kannast þú við Vivian Maier

Ef þú þekkir ekki ljósmyndarann Vivian Maier þá er það svo sem engin furða því fáir ef nokkrir virðast hafa gert það. Samt sem áður lætur Vivian eftir sig hundruðir þúsunda mynda og töluvert af óframkölluðum filmum sem af tilviljun voru gripnar af söguritara á uppboði.


Samkvæmt heimildum kom Vivian til Chicago frá Frakklandi ung að árum og um 11 ára aldurinn vann hún í einhverskonar „sweat shop “, en ekki er greint frá hverrar tegundar. Hún er talin annað hvort Kaþólsk eða af gyðinga ættum en samt anti kaþólsk, Hún var sósíalisti, feministi, kvikmyndagagnrýnandi og mjög hreinskiptin. Hún er talin hafa lært ensku af því að horfa á bíómyndir, sem hún elskaði ef þær voru evrópskar, Hún klæddist oftast karlmans jakka, karlmans skóm og stórum hatti og tók endalaust af myndum sem hún sýndi aldrei neinum.


........mig langar að fræðast nánar