Ljósmyndaskólar

Feb
01

Hver ætlar að kæra Gassa

Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.........mig langar að fræðast nánar

Nov
11

Er ljósmyndun meiri list en grafísk hönnun.

Tag: Ljósmyndaskólar

Það mætti alveg, án mikillar fyrirhafnar, áætla sem svo að grafísk hönnun væri miklu meiri list en nokkurntíman ljósmyndun því grafísk hönnun er kennd í listaháskóla Íslands en ljósmyndun ekki.

En málið er ekki alveg svo einfalt, enda inniheldur kennsla í grafískri hönnun, kennslu í ljósmyndun, þar sem þekking á því að vinna með myndir í rými er grafískum hönnuðum nauðsynleg.

........mig langar að fræðast nánar

Jan
20

Það er leikur að læra

Í vikunni var ég gestur í nýju aðstöðu ljósmyndaskólans sem nú heyrir undir tækniskólann. Þar flutti ég útgáfu af fyrirlestri mínum USA my way og spjallaði við nemendur.Það er ekki laust við að ég hugsi með söknuði til baka til þeirra gömlu góðu daga þegar ég var í skólanum í Gautaborg og lífið snérist um það eitt að taka myndir og betrumbæta tæknina. Við bjuggum við þann lúxus að geta eytt öllum sólahringnum í skólanum ef svo bar undir þó svo það væri ekkert allt of vel séð af skólastjóranum. ........mig langar að fræðast nánar