Þegar sett er fram spurningin hvort sé betra Ligtroom eða Bridge er í raun verið að spyrja um hvort mönnum þyki betra epli eða epli. Eini munurinn er kanski sá að annað er grænt meðan hitt er gult. Hvort telst svo til hvors fer að mestu eftir því hverju ljósmyndarar hafa vanist, hversu vel þeir nenna að setja sig inn í bæði forrit og að einhverju leiti einnig eftir því að hverju menn eru að leita í framköllunar og umsýslu forriti.
Bridge og Lightroom eru byggð á ólíkum grunni og og með ólíka hugsun að baki, þó hvorugt þeirra sé í raun það sem kallað er DAM forrit eða skjalavörsluforrit þá hefur Lightroom ýmsa möguleika fram yfir Bridge í þeim efnum. Bridge hefur hinsvegar nálgast Lightroom nokkuð sem og hefur Lightroom nálgast nokkuð möguleikana í Bridge frá því að það kom fyrst fram.
........mig langar að fræðast nánar