Ljósmyndun

Jun
21

Hvað er ljósmynd

Tag: Ljósmyndun

Frá því að ég fyrst handlék stafræna myndavél hef ég verið að velta því fyrir mér hvað gerir ljósmynd að ljósmynd. I verkum mínum frá árinu 1994 og fram yfir 2000 gerði ég fjölda tilrauna þar sem ég reyndi að skilgreina hvað ljósmynd væri og hvað hún væri ekki. í þessum tilraunum mínum reyndi ég einnig að kanna það hvernig fólk læsi ljósmyndir og skoðaði. Þar á ofan þá kannaði ég hvort það skipti máli hvort ljósmynd væri mikið unnin eða hvort það skipti miklu máli hvaða tækni væri notuð til að búa til ljósmynd með. Einna helst vildi ég vita hvort eitthvað af þessu skipti máli.........mig langar að fræðast nánar

Mar
26

Hvað er Creative fee

copyright: 

Kristján Logason.

 

Kál eða blóm.

Sveigjanleiki í viðskiptaumhverfi ljósmyndunar er ekki bara nauðsynlegur fyrir ljósmyndara sjálfa heldur gefur slíkt þeim einnig möguleika á því að veita betri og oft á tíðum ódýrari þjónustu en hagnast samt.

 

 

Creative fee er ekki þekkt hugtak í íslenskum ljósmyndaheimi enda hann afar vanþróaður eins og íslenskt viðskptaumhverfi og íslenskt viðskiptasiðferði. Creeative fee í stuttu máli er það hvað þú ætlar að hafa í listrænana hagnað af verki þínu.........mig langar að fræðast nánar

Mar
26

Hvaða myndavél á ég að taka með í gönguferð

Tag: Ljósmyndun
copyright: 

Við myndatöku í Copper Canyon i Mexikó, en um þetta svæði gegnum við í 12 daga ferð með allt of þunga poka því að á hverjum morgni þufti að fylla á allar vatnsbyrgðar fyrir daginn og helst meira til þar sem óöruggt var um vatn.  Í þessu tilfelli kom sér vel að haf joð með í för.  

 ........mig langar að fræðast nánar

Feb
26

Framtíð ljósmyndunar á íslandi

Tag: Ljósmyndun

Þvert ofan í áætlun mína síðustu helgi þegar ég settist niður til að skrifa pistil um það að ég hyggðist draga úr skrifum á þessa síðu sökum annarra hugðarefna eins og vinnu við eigin myndir , þá jukust skrifin að nýju. Póstur sem ég fékk á samri stundu og ég settist niður varð til þess að ég skrifaði enn og aftur um höfundaréttarbrot sem eiga sér stað í íslenskum miðlum og hjá Íslenskum fyrirtækjum.Viðbrögðin sem ég hef fengið og póstar sem þvi miður sanna grun sem ég hef haft um stund (og kem til með að skrifa um) sem sýnir einbeittan brotavilja íslenskra miðla gerir það að verkum að ég get ekki þagað þó svo ég vildi. Hér er um háalvarlegt mál að ræða sem þjóðfélagið virðist líta á sem smámál en tekur til lífsafkomu manna og þeirra grundvallar réttinda sem er staðfest með stjórnarskrá og höfundaréttarlögum að menn hafi ráðstöfunarrétt yfir eigum sínum og verkum.........mig langar að fræðast nánar

Feb
09

Af hverju skyldi ég merkja myndirnar mínar.

copyright: 

Kristján Logason

Það er tvennt sem er næsta víst í þessum heimi. Íslenskir fjölmiðlamenn eru upp til hópa þjófar sem svífast einskis þegar kemur að ljósmyndum og það að trúa á CC sem einhverja vörn gegn myndþjófnaði er heimskulegt í versta falli en barnalegt í besta falli.........mig langar að fræðast nánar

Feb
03

Listin að lesa ljósmynd

copyright: 

Kristjan Logason

Ljósmynd er ekki bara eitt eða annað og oft getur leynst meira í einni mynd en margan grunar. Þannig er það ekki alveg rétt að ljósmynd segi allan sannleikann og á stundum þá er jafn athyglivert hvað ekki er á myndinni eins og það hvert innihald myndarinnar er.

Það er sem betur fer orðið vinsælla en áður var, og gleður mig mikið, að spá í ljósmyndir og hvað býr að baki ljósmynd. Slíkt er eitthvað sem ætti að vera skildukennsla í skóla samhliða því að lesa í aðra list. Ungir áhugaljósmyndarar  jafnt sem þeir eldri eru farnir að leggja fram spurningar eins og það hvernig menn lesi í ljósmynd og hvernig menn greini þær og leggi sinn skilning í myndir.

........mig langar að fræðast nánar

Feb
02

Af hverju Creative Commons er af hinu illa

copyright: 

Kristjan Logason

Ef það væri verið að markaðssetja höfundarétt þá er ljóst að skoðun mín á Creative commons væri töluvert önnur en hún er í dag. Alveg frá fyrstu tíð að þessi óskapnaður kom fram hef ég haft á honum illan bifur og það fjölgar hratt í þeim hópi sem teljast til andstæðinga CC enda hefur það sannast að tilurð þes er ekki til að einfalda hlutina, nema fyrir þá sem vilja fá myndir ókeypis. Fyrir alla aðra flækir creativ commons  tilverunaÁstæða þess að ég hef haft svona illan bifur af CC er að í fyrstalagi þá sá ég ekkert athugavert við gamla góða höfundaréttarkerfið ne heldur sá ég nokkuð athugavert við það þó menn þyrftu að bera sig eftir björginni við að fá birtingaleifi. í annan stað þá hef ég aldrei á minni æfi séð aðra eins markaðsherferð farna til handa höfundarétti eins og CC og þegar ég fór að grenslast fyrir um þá sem að baki stóðu fóru að renna á mig tvær grímur. Hví eru ríkustu netviðskiptamenn heims, sem engum vitanlega eru að skapa neitt listrænt, að spandera svona miklum peningum í að markaðsetja þennan óskapnað.........mig langar að fræðast nánar

Eru endalok alheims ofin í endalok Kodak

Það eru ekki fagrar sölutölurnar sem hafa verið birtar fyrir stóru nöfnin í heimi ljósmyndunnar og mörg þekkt nöfn úr ljósmyndasögunni sem skipt hafa um eigendur á síðustu árum. Agfa, Mamiya, Ilford og síðast Hasselblad sem komið er úr Sænskri eigu yfir í hendur Japanskra eigenda.........mig langar að fræðast nánar

Apr
29

Vilt þú gefa miljón

Stundum vildi ég að ég hefði ekki rétt fyrir mér. Sérstaklega í málum er virðast ganga gegn straumnum og verða þess valdandi að maður hljómar eins og forpokaður afturhaldsseggur. Réttindi eru hins vegar ekki sjálfgefin né eitthvað sem ætti að taka með léttúð og gefa frá sér.........mig langar að fræðast nánar