Metnaður

Feb
01

Hver ætlar að kæra Gassa

Nú er nokkuð um liðið síðan það varð ljóst að lög í landinu skulu standa sem og kæra nokkurra ljósmyndara á hendur Brosbörnum og Gamanmyndum. Hæstiréttur vísaði málinu frá og þó ég hafi ekki komist yfir niðurstöðu hæstaréttar enn sem komið er má gera því skóna að það sem sagt hefur verið alla tíð að lög skuli standa meðan þau eru i gildi sé rétt.Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvers vegna hæstiréttur ákvað að vísa málinu frá en hugsanlega er það vegna þess að hæstiréttur var á sama máli og undirréttur að á vörnin í málinu væri verulegur annmarki og fráleitt til þess fallin að umturna núverandi lögum, né véfengja þau á nokkurn hátt.........mig langar að fræðast nánar

Feb
22

Af hverju fá lélegir ljósmyndarar að ráða för

Tag: Metnaður, Nám, réttindi

í umræðunni um réttindi ljósmyndara skýtur upp kollinum krafan um réttin til að kalla sig ljósmyndara á ólíklegustu stöðum. Einnig krafan um það að ljósmyndun sem lögvernduð iðngrein verði slitin úr samhengi sínu.Þeir sem hæst hafa í þessum efnum eru það sem ég myndi hreint út kalla lélega ljósmyndara.........mig langar að fræðast nánar

Feb
21

Eru Íslenskir ljósmyndarar í tómri steypu.

Það mætti ætla eftir lestur greinar Max Houghton þar sem hún fjallar um kynni sín af íslenskri ljósmyndun í gegnum veru sína í dómnefnd hjá Blaðaljósmyndarafélagi Íslands að Íslenskir ljósmyndarar væru í tómri steypu. Ég verð að segja að þó ég hafi ekki séð eina einustu mynd úr keppninni þá koma orð hennar mér ekki á óvart. Þau eru eins og endurrit af eigin hugsunum síðustu ára.........mig langar að fræðast nánar