Nám

Fjölbreytt og fræðandi námskeiðaröð um stafræna myndvinnslu

Ljósmyndafræðingurinn og forsvarsmaður Focus on Nature hann Einar erlendsson hefur sett á laggirnar metnaðarfulla námskeiðaröð í stæfrænni myndvinnslu sem gleðja ætti alla þá sem auka vilja hæfni sína hvort sem er í myndatöku, mynd vinnslu litmynda, lit stýringu eða í vinnslu svarthvítra ljósmynda.

Efnistökin eru víðfem og verður að segjast eins og er að hér er á ferð ein metnaðarfyllsta námskeiðaröð í ljósmyndun sem sést hefur á íslandi. Hægt er að hvetja alla hvort sem eru áhugamenn eða atvinnumenn að sækja sér fróðleik á þessi námskeið enda ætti verð þeirra ekki að þvælast fyrir neinum. Allar dagsetningar námskeiðanna eru komnar inn í atburðardagatalið hér á sjonarmid.com en einnig má fá frekari upplýsingar um námskeiðin á www.focusonnature.is
 

........mig langar að fræðast nánar

Hágæða svart/hvítar stafrænar myndir - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Mon, 28/03/2011 - 18:30 - 22:00

Mánudagurinn 28 mars, kl 18:30-22
Vinnsla svart/hvítra mynda í LIGHTROOM, tónstillingar eftir tónum eða litum, notkun forstillinga, vistun forstillinga, innflutningur og útflutningur forstillinga. Vinnsla svart/hvítra mynda í PHOTOSHOP, margar mismunandi aðferðir, stillingar og notkun viðbóta, t.d. Nik Silver Efex Pro og fleira.

Fyrir 2. og 3. stig........mig langar að fræðast nánar

Gerð Slideshow og Webarchive í LIGHTROOM - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Wed, 23/03/2011 - 18:30 - 22:00

Miðivkudagur 23. mars, kl 18:30-22
Farið verður yfir allar stillingar varðandi gerð „Slideshow“ í LIGHTROOM, sýningu þeirra í LIGHTROOM, útflutning þeirra sem Pdf eða HD video og fleira.
Einnig stillingar fyrir vefalbúm, uppsetningu þeirra og útflutning, upsetningu á vefþjóna og slóðir á tölvupóst eða veffang.


Fyrir alla ........mig langar að fræðast nánar

Prentun frá LIGHTROOM eða PHOTOSHOP - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Mon, 21/03/2011 - 18:30 - 22:00

Mánudaginn 21. mars, kl 18:30-22
Farið verður yfir allar uppsetningar varðandi prentun, gerð prentpakka, sérsnið á prentpökkum, sýnishornaprentun og stillingar á prófílum og prentskipunum fyrir prentun úr LIGHTROOM. Einnig samþættingu LIGHTROOM og PHOTOSHOP fyrir „hig-end“ proofing og prentun og vistu BAT skráa.........mig langar að fræðast nánar

Litastýringar frá A-Ö - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Wed, 16/03/2011 - 18:30 - 22:00

Miðvikudagur 16. mars, kl 18:30-22........mig langar að fræðast nánar

Stærðir mynda, upplausn og skerping - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Wed, 09/03/2011 - 18:30 - 22:00

Miðvikudaginn 9. mars, kl 18:30-22

Algengt er að það skorti nægilega þekkingu í tengslum stærðir og upplausnir mynda þegar þeim er miðlað milli aðila til mismunandi notkunar. Úr því er þessu námskeiði ætlað að bæta. Farið verður yfir öll lögmál varðandi stærðir á myndum, myndskurð, stækkun/minnkun, upplausn og að lokum skerpingu fyrir mismunandi notkun.........mig langar að fræðast nánar

Að kynnast myndavélinni sinni - námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Mon, 07/03/2011 - 18:30 - 22:00

Mánudaginn 7. mars kl 18:30-22........mig langar að fræðast nánar

LIGHTROOM verkferlar fyrir portrait ljósmyndun- námskeiðaröð Focus on Nature

Dagsetning: 
Sat, 05/03/2011 - 10:00 - 15:00

Laugardaginn 5. mars kl 10-15
Farið verður yfir verkferla í LIGHTROOM, og samþættingu við PHOTOSHOP, sem eru tímasparandi varðandi alla vinnslu og umsýslu myndataka. Einnig komið inn á hentugar viðbætur fyrir portrait ljósmyndun. Byrjað verður á verkferlum áður en myndataka á sér stað og þar til myndir hafa verið unnar til afgreiðslu. Æskilegt er að þátttakendur hafi grunn í LIGHTROOM.........mig langar að fræðast nánar