réttindi

Dec
02

Bylting er sjaldnast þögul þó þjófnaður sé.

Tag: réttindi

Að umbreyta þjóðfélagi, lögum þess og reglum gerist sjaldan með þögninni þó til séu dæmi þess að lögum sé laumað í gegn á síðustu dögum alþingis. Yfirleitt hafa þó slík lög undangengist einhverja umræðu úti í þjóðfélaginu og þó ekki hafi alltaf skapast um þau sátt þá una menn niðurstöðu eða vinna í að fá þeim breytt.

 ........mig langar að fræðast nánar

Dec
01

Áfram vellur vitleysan.

Tag: réttindi

 

Umræðan um hinn unga ofurhuga í áhaugasviksemi heldur áfram að hringsnúast sem mest hún má. Nú eru menn komnir aftur til ársins 2004 og í það far sem hún var þá. Þegar hér er komið sögu eru menn farnir að draga fram einstaka fræga aðila og benda á að þeir seú ekki ljósmyndalærðir en líta algerlega fram hjá þremur staðreyndum sem skipta máli. 

 ........mig langar að fræðast nánar

Nov
30

Æ þjóð mín hvar er þín siðfræði.

Tag: réttindi

Það hefur teygst og togast úr umræðunni um lögbrots athæfi ungs og ákafs áhugaljósmyndara inni á spjallvefnum ljosmyndakepni.is. Umræðan eins og títt er um slíka umræðu hefur farið út um víðann völl og sitt sínist hverjum.

 ........mig langar að fræðast nánar

Nov
27

Hroki og hleypidómar

Það verður að teljast af hinu góða þegar ungir aðilar vilja storka því sem þeim finnst vera staðnað kerfi.........mig langar að fræðast nánar

Nov
06

Nýju fötin DV

Tag: Höfundaréttur, réttindi

Dv er eitt þeirra rita í íslenskri fjölmiðlaflóru sem hátt hefur haft um heilbrigði Íslands og þess viðskiptalífs og hvernig taka þurfi á málunum svo koma megi landinu aftur á lýðræðisbraut.

Í nýlegum leiðara um einelti mælir Jón Trausti Reynisson svo:........mig langar að fræðast nánar

Oct
18

Auðvitað opnar allt upp á gátt

Tag: réttindi
copyright: 

Kristján Logason

Nú er á næsta leyti Aðalfundur ljósmyndarafélags Íslands. Þar verður til umræðu breytingar sem verið er að vinna að hvað varðar iðnlöggjöfina. Breytingar sem búið er að eiga von á lengi en menn hafa þverskallast við að skoða. Það er ósk mín að nú taki félagsmenn við sér og ræði af alvöru að opna nú fyrir markaðinn. Það er enginn þörf á því að opna félagið og í raun eiga að mínu mati að vera ströng inntökuskilyrði í félagið áfram. Ljósmyndarafélagið er fyrir lærða ljósmyndara, aðrir get svo stofnað önnur félög enn öll félög vinna saman í einum regnhlífarsamtökum eins og nú gerist í Noregi.

........mig langar að fræðast nánar

May
06

Huff puff og Creative Commons

Tag: Höfundaréttur, réttindi

Ég hef svo sem áður íað að því að mér líki ekki við Creative commons og jafnvel gengið svo langt að segja að CC nálgist að vera vera af hinu Illa þegar ljósmyndarar eiga í hlut. Ekki hefur öllum líkað rök mín í þessum málum en þeir hinu sömu sjá einatt ekki hlið ljósmyndara á málinu og halda að hægt sé að setja eins og eitt ríkis CC á alla hluti sem birtast einhverstaðar.........mig langar að fræðast nánar

Apr
30

Hver ætlar að stöðva stelpurnar

Tag: Ljósmyndanám, réttindi

Það er spurning hvað fyrrverandi menntamálaráðherra Þorgerður Katrín var að hugsa þegar hún veitt ljósmyndaskólanum heimild til að útskrifa nemendur með prófskírteini í Listrænni ljósmyndun.........mig langar að fræðast nánar

Mar
20

Innovit - Fingralangir frumkvöðlar.

Tag: Höfundaréttur, réttindi

Einn af þeim eiginleikum manna sem mestu ollu um hið íslenska efnahagshrun var siðferðisstandard þeirra sem við höfðum skammtað okkur til að ráða ríkjum í þjóðfélaginu. í raun var hér um að ræða skort á siðferði eða siðblindu á frekar háu stigi en lélegt grunn siðferði er eitthvað sem menn spyrða helst við glæpagengi og einmitt hrunverja.........mig langar að fræðast nánar