Sýningar

Í ríki fuglana - einkasýning Ómars Óskarssonar

Nú stendur yfir einkasýning Ómars Óskarssonar “Í ríki fuglana” en Ómar hefur um langt árabil stundað fuglaljósmyndun samhliða starfi sínu sem ljósmyndari á Morgunblaðinu, en myndir hanns af fuglum á síðum blaðsins hafa jafnan vakið mikkla athygli, og hafa unendur þeirra beðið eftir þessari sýningu lengi.........mig langar að fræðast nánar

Tíð í gallerí Fold

Dagsetning: 
Sat, 30/04/2011 - 15:00 - Sun, 15/05/2011 - 14:30

Laugardaginn 30. apríl kl. 15 opnar Jökull Snær Þórðarson sýningu í Gallerí Fold.
Á sýningunni sem listamaðurinn nefnir Tíð og stendur til 15. maí eru fjöldi nýrra verka.

Jökull Snær Þórðarson er fæddur og uppalin á Seyðisfirði.........mig langar að fræðast nánar

Himinn og jörð, ljósmyndasýning Láru Stefánsdóttur

Ljósmyndasýning í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík á laugardaginn kl. 14:00 en sýningin verður opin til 17. maí


Hugmynd að verkefninu himinn og jörð vaknaði þegar ég var að fara í starfsviðtal til Ólafsfjarðar í janúar 2010. Ég staldraði við í Múlanum og þar blasti Grímsey við en þangað hafði ég komið og notið þess að skoða fallegt landslagið heimsækja góða vini og njóta.


........mig langar að fræðast nánar

Leifur Þorsteinsson og Landssmiðjan

Tag: Sýningar

 

Leifur Þorsteinsson, ljósmyndari, sýnir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 15 myndir af Landsmiðjunni gömlu sem nú er horfin. Myndin er annar hluti sýningarraðar Leifs, Sýningarröð 2011.

Leifur tók myndirnar árið 1966, fyrir Iðnsýningu Reykjavíkur og tók þá líka myndir af eldsmiðjunni, en þær voru ekki sýndar á Iðnsýningunni, þar sem sá verkþáttur þótti gamaldags. Myndirnar sýna bæði menn að störfum, sem og vinnuaðstöðuna í Landsmiðjunni. Sýningin verður opnuð í dag og stendur til 8. maí.

........mig langar að fræðast nánar

Katrín og Pétur sýna Vöknun á Akureyri

Næstkomandi Laugardag 12 mars kl 15 munu ljósmyndararnir Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen oppna ljósmyndasýningu í Listasafni Akureyrar. Um sýninguna segir meðal annars í sýningarskrá...


 Á sýningunni eru verk eftir Katrínu Elvarsdóttur og Pétur Thomsen. Tvo myndlistarmenn sem valið hafa sér ljósmyndina sem miðil og virðast stundum hafa allt að því fullkomna stjórn á miðlinum, í það minnsta upp að því marki sem raunverulega er mögulegt að hafa stjórn á honum....


........mig langar að fræðast nánar

Þórir Ingvarsson sýnir í Skotinu – Hús eru líka fólk

Þórir Ingvarsson – Hús eru líka fólk 10. mars – 4. maí.

„Á sýningunni Hús eru líka fólk má sjá allskyns einstaklinga. Hópurinn má segja sé margbrotin blanda af skipulögðu, lötu, litaglöðu, nýtnu, ringluðu, sóðalegu og þroskuðu fólki“

Myndirnar eru allar teknar hér á landi en Þórir hefur einnig myndað litríka „einstaklinga“ út um allan heim. Hann hefur unnið að myndaröðinni síðastliðin þrjú ár.

........mig langar að fræðast nánar

Jóhannes Frank sýnir birtuskil

Laugardaginn 12. mars kl. 15 opnar Jóhannes Frank ljósmyndasýningu í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Á sýningunni sem listamaðurinn kallar Birtuskil gefur að líta svart hvítar ljósmyndir frá náttúru Íslands.


Sýningin stendur til 27. mars 2011.


........mig langar að fræðast nánar

Spennandi samstarf Íslenskra rithöfunda og Pólskra ljósmyndara

EI(land)


Ljósmyndasýning 12. mars - 8. maí 2011
Í samstarfi við Listasafn Árnesinga og Sputnik photos í Póllandi
 


Ljósmyndasýningin er afrakstur verkefnis sem Sputnik photos ákvað að ráðast í með styrk frá Menningarsjóði Póllands og EES / EFTA ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs. Verkefnið verður kynnt með dagskrá í Norræna húsinu 11. febrúar kl. 20. Settar verða upp þrjár sýningar á Íslandi og þrjár í Póllandi. Fyrsta sýningin opnar í Menningarhúsinu Hofi, laugardaginn 12. febrúar og síðan verða opnaðar sýningar hér í Gerðubergi og í Listasafni Árnesinga laugardaginn 12. mars. Á sýningunni má sjá afrakstur úr ferðalögum pólsku ljósmyndaranna og íslensku rithöfundanna sem ferðuðust um landið á síðasta ári. Auk sýninganna verður gefin út vegleg bók og margmiðlunarefni. Heiti sýningarinnar á ensku er IS(not) og ber bókin það nafn. Sýningarstjóri og ritstjóri bókarinnar er Andrzej Kramarz. Marzena Michalek er verkefnisstjóri fyrir hönd Sputnik photos.
........mig langar að fræðast nánar

Mar
02

Gamlir refir greddu betri

Tag: Sýningar
copyright: 

Kristinn Ingvarsson Verðlaunamynd Kristins Ingvarssonar í flokki portretljósmyndunar í árlegri keppni blaðaljósmyndarafélags Íslands

Ungir drengir fullir af testesterón ættu með auðmjúkum augum að líta til þess hverjir það eru sem sópuðu til sín verðlaunum nýliðna helgi þegar gerð voru heirinkunn úrslit í mynd ársins sem haldin er árlega af blaðaljósmyndarafélagi Ísland. Út úr úrslitunum má nefnilega lesa að ljósmyndun er ekkert spretthlaup hvar ungir menn fullir "myndgreddu" og tækja dellu hafa yfirburðastöðu. Ljósmyndun er langhlaup og víðavangshlaup um leið. Það skiptir máli að sprengja sig ekki í upphafi með oflæti heldur á hæglátann máta vinna sig fram til þess að bera virðingu fyrir því sem er myndað og skila þeirri virðingu til áhorfenda, þannig fá virðingu til baka.........mig langar að fræðast nánar