Nov
16

heimsins undarlegustu áhugaljósmyndarar

Tag: áhugaljósmyndarar, réttindi
heimsins undarlegustu áhugaljósmyndarar

Í síðastliðinni viku tók umræðan um ljósmyndun sem lögverndaða iðngrein á sig einhverja þá sérkennilegustu mynd sem búast mátti við. Það má vel skilja þá sem vilja ræða það hvort núgildandi form laga, réttar og kennslu, sé endilega það rétta og hvort hægt sé að fara aðrar og betri leiðir til að færa ljósmyndaumhverfið fram á við.

 Umliðna helgi tóku hinsvegar félagar í HUL sig til og gáfu gestum og gangandi (eða hverjum sem þeir gátu neitt inn í myndver) eitt stykki myndatöku afhenta á diski.

Hópur sá sem tók sig til og gaf fólki myndatöku hefði alt eins getað stormað niður á tjörn og gefið öndunum brauð til að mótmæla því að fá ekki að fljúga frjáls um heiminn, enda virðist hópurinn (miðað við lauslega könnun) fyrst og fremst hafa verið í því að mynda sjálfan sig og aðra þá sem eru sama sinnis inni á vef LMK.

Áhrif þessa gjörnings eru engin, nema ef vera skildi sá að geta svo stofnað til spjallþráðar þar sem þátttökuaðilar æfa sig undir heimsmeistarakepnnina í sjálfbyrgingi, sem þó ku hafa verið aflögð við hrun 2008 þar sem flestir þáttakendur í þeirri íþrótt hafa fært sig yfir í þjóðlegri íþróttir eins og drulludreifingu og baknag.

Hvernig þessi gjörð á að færa umræðuna fram á við og upp úr drullureyfarapytti sem hún hefur verið í, veit ég ekki, en mér segir svo hugur að með þessu hafi þeir gefið endalnlegan skít í ljósmyndun, ljósmyndafagið, fagleg vinnubrögð og alla þá grunn hugsun sem ljósmyndun snýst um.

Þessir aðilar haf nú með einstökum hætti opinberað f(l)áráðsku sína í allri þessari umræðu. Þeim stendur ekki hugur til að opna fyrir aðkomu annarra, svo ljósmyndun og þeir sem hennar vilja njóta á Íslandi megi njóta þess sem best gerist, heldur stendur þeim einvörðungu hugur til þess að eyðileggja það sem til staðar er og draga ljósmyndun niður á þann ógæfustaðal sem geta þeirra sjálfra hefur verið föst á um nokkurt árabil.

 Útkomuna úr þeim listræna gjörningi að taka jólamynd af Íslendingum með fabrikkumálaða Lundúni í bakgrunni er best að ræða ekki frekar heldur gefa fólki færi á að dæma sjálft.

Hér: Og hér: 

Í þessum hópi er líka vestfirska barnið sem varð undir jólaskreytingu

 Vel má vera að ég sé að miskilja þetta allt saman og að hér hafi átt að vera á ferð súrrealíksur listgjörningur í nýrri listmiðstöð í miðju háskólasamfélagi og innlegg í listfræði og leikhúskúrs við endurmenntunardeildina á Dunhaga, eftir þessa uppákomi get ég samt ekki annað en velt því fyrir mér hvort HUL standi fyrir Hugsanlega undarlegustu ljósálfa íslandssögunnar,

Þá mundi ég eftir hinu fína félagi áhugaljósmyndara sem einmitt heitir Ljósálfar og gert hefur ýmsar skemmtilegar tilraunir með ljósmyndamiðilin og útfærslu á honum, ásamt því að standa fyrir sýningum á Íslandi og í öðrum löndum norðursins. Það er því ósanngjarnt gagnvart þeim að nefna þessa aðila álfa, því þeir hafa ekki verið ljósmyndun til jafn mikils sóma.

Hul fær því að standa áfram í mínum huga sem heimsins undarlegustu áhugaljósmyndarar.

 

ES: af einhverri ástæðu hafa tenglar orðið óvirkir eftir því sem flettingar á grein þessari hafa aukist. Það er miður ef menn telja sig ekki geta staðið með verkum sínum en kanski birtast önnur verk þeirra í þessum þræði hér:

Rétt er að benda líka á umræðu um þessa grein inni á LMK hér:

 

Ummæli

Mið, 17/11/2010 - 01:56

Þessi mynd er af mér og hér ertu búinn að slíta hana úr samhengi. Við gerðum góðverk buðum 3 bakkgrunna og þessi var vinsælastur. Vona að þú sjáir af þér og takir myndina af mér út. Mér er ekki vel við að hún sé þarna. þér er velkomið að linka á umælin á ljósmyndakeppni.is þar sem þú hefur stolið linknum.Hérna er hann svo allir geti komist að sannleikanum um myndina.http://www.ljosmyndakeppni.is/viewtopic.php?t=61633&postdays=0&postorder=asc&start=120Ég er furðulegur eins og sannur listamaður, Ekki Iðnaðarmaður Takk fyrir hrósið.Þessi póstur fær að standa og verður ekki svarað neitt fregar. Fyrir framm Þakkir Gísli J

Mið, 17/11/2010 - 04:47

Sæll Gísli og takk fyrir innleggið

Myndin af þér get ég ekki tekið út þó svo ég geti tekið tengilinn á hana. Finnist þér hun ekki nógu góð verður þú að ræða það við myndhöfundinn sem birti hana. Hann hefur væntanlega haft leyfi til þess.

Ég tel mig einmitt hafa verið að reyna varpa ljósi á skoðun mína og gefa öðrum færi á því að mynda sér skoðun burt séð frá minni, með því að vísa í afrakstur starfsins og því ekki verið að slíta úr samhengi heldur gera tilraun til að styrkja samhengið. 

Þegar lagðar eru fram myndir til sýnis fyrir alheim eins og gerist þegar myndir eru lagðar á netið verður maður að vera tilbúinn að taka þeirri gagnrýni sem fæst. Allar myndir sem birtast opinberlega eru gagnrýndar á einn eða annann hátt og þá þarf maður að vera viss um að legggja ekki út nema það sem maður vill fá gagnrýni á.Þð sterkasta vopn sem hver ljósmyndari hefur eru hans myndir, en þær geta einnig verið hans akkilesarhæll ef munnurinn er meiri en myndirnar.

Tengillinn sem þú bendir á inniheldur einnig þessar myndir en litlar viðbætur við greinina og kanski hefði ég já átt að vísa á hann í niðurlagi einnig.

Einn er sá hópur sem fór af stað með það góðverk að gefa þeim sem ekki eiga fjármuni myndatöku. Það er vel að menn geri svo og kanski hefði ég litið málið öðrum augum ef slíkt hefði einhverstaðar komið fram.

Hins vegar var í öllum tilvikum aðeins talað um að bjóða upp á ókeypis myndatöku til að mótmæla dómi, það er annar og annarlegri tilgangur en það að vara göfugur og í hljóði gefa fólki myndir af sér.

Hvort þú ert furðulegur eða ekki skal ég ekki segja um enda tel ég okkur ekki hafa hisst og því erfit um að dæma. Hópurinn og hans aðgerðir sæta hins vegar furðu minni

Hvort þú ert listamaður eða iðnaðarmaður skal ég svo dæma um síðar þegar þú leggur fram myndir þínar til sýningar og dóms.

Kristján Logason ljósmyndari skrifar um ljósmyndun og sýnir myndir sýnar á www.aurora.is

Mið, 17/11/2010 - 12:41

http://www.ljosmyndakeppni.is/viewtopic.php?t=61633&postdays=0&postorder=asc&start=120