Nov
18

Listin að finna ekki sjálfan sig

Tag: áhugaljósmyndarar
Listin að finna ekki sjálfan sig

Þeir félagar í Hul sem stóðu að hinni stórundarlegu myndatöku seríu nú um síðastliðna helgi hafa nú snúið við blaðinu og sennilega tekið upp slagorðið :„Frelsi til að þagga niður í sjónarmiðum“ . Það er vel, því þess minna sem þeir skipta sér af ljósmyndun því ánægðari verð ég .

Á meðan á þessum hræringum stendur fáið þið hin vonandi næði til að ræða ljósmyndun á viturlegri grunni en gert hefur verið. Það er þörf á því að skoða ljósmyndun frá ýmsum sjónarhornum náms og námsframboðs, höfundaréttar, stéttarvitundar, lista og menningar, tækni og nýjunga. Ljósmyndun er nefnilega víðtækari hluti af okkar lífi en margur gerir sér grein fyrir.

Meðan þeir félagar ráða för í umræðunni snýst hún aðeins um það að neytandi fái að velja rusl fram yfir annað. Allavegana fæ ég ekki skilið annað af umræðu þeirra. Þeim gengur ekki það til að gera sjálfa sig að betri ljósmyndurum, né styrkja aðra til að verða að betri ljósmyndurum. Fyrir þeim liggur ekki að gera ljósmynda umhverfið betra og aðgengilegra fyrir neytendur þannig að þeir sem vilja myndatöku hafi raunverulegt val, byggt á upplýstri ákvörðun.

Mér virðist sem svo eins og ég hef áður sagt að aðeins liggi fyrir þeim að rífa niður af því að þá langar til þess. Ekki að rífa niður til að byggja upp eitthvað annað og betra.

Í allri þessari  fljótfærni sinni við að rífa niður taka þeir til hinna ýmsu meðala eins og áður nefnda myndatöku. Það furðulega við þá myndatöku er að til hennar var stofnað til að mótmæla dómi í undirrétti yfir pari sem hélt úti ljósmyndaþjónustu í trássi við lög. Hins vegar eftir að hafa fengið gagnrýni á atburðinn þá hét þetta allt í einu góðverk til jóla og voru þeir þar með búnir að stela frá öðrum hópi áhugaljósmyndara þeirri hugmynd að gefa þeim er minna mega sín og ekki hafa efni á myndatöku, færi á slíku.

Annað sem er alvarlegra finnst mér er að þeir kynntu þetta ekki fyrir fólki sem mótmælamyndatöku og pössuðu sig á því að minnast ekki einu orði á slíkt á staðnum. Eftir helgi var þetta svo orðið jólagjörningur. Mér þykir það undarleg mótmæli að mótmæla ekki. En svona er nú það. Ég veit ekki hvort allir þeir er fóru í myndatöku væru hins vegar sáttir við að vera notaðir í slikum tilgangi, sérstaklega ef þeir vissu ekki af því. Í mínum huga heitir þetta að brjóta á trúnaði við viðskiptavini.

Þeir félagar eru samt ekki alveg vissir í sinni sök hvort þeir voru að mótmæla eða ekki. Ég er eiginlega á því að ef þeir voru að mótmæl þá vissu þeir ekki hverju þeir voru að mótmæla, né hverjir, því þeir keppast við að sverja af sér samskipti við alla sem á einhvern hátt hafa leitt til þess að Ég mótmæli hástöfum.

Ég hef haldið því fram að mér fyndist tilgangur þeirra annarlegur, enda hef ég ekki sé nákvæmlega sett á blað hjá þeim hvað þeir vilja annað en að þeir vilja réttindi burt. Aðrar hugmyndir eða hugsanir hafa ekki frá þeim komið.

Ég efa það ekki að einhverjir ljósmyndarar og áhugaljósmyndarar þarna úti hafi skýra skoðun á því hvernig þeir vilja að landið liggi. Ég hvet þá hina sömu til að ræða málin og komast að góðri niðurstöðu. Á meðan held ég þeim hinum uppteknum við að finna sjálfa sig og hvað þeir eiginlega vilja.

 

Til glöggvunar er hér upprunalegur spjallþráður:

Dómi héraðsdóms mótmælt með ókeypis jólamyndatöku

Og svo núverandi spjallþráður þar sem því er mótmælt að hafa mótmælt:

Sjonarmid.com part II