Blaðaljósmyndarakeppni Canon (BLC) er ný ljósmyndasamkeppni fyrir íslenska blaðaljósmyndara sem Nýherji, Kringlan og Blaðaljósmyndarafélag Íslands efna til í tengslum við World Press Photo sýninguna í Kringlunni dagana 16. júní - 7. júlí.
Í Blaðaljósmyndarakeppni Canon gefst íslenskum blaðaljósmyndurum kostur á að taka þátt í skemmtilegri keppni og vinna til glæsilegra verðlauna. Þá mun dómnefnd keppninnar velja 30 bestu myndirnar sem verða birtar á sérstakri ljósmyndasýningu í Kringlunni í lok ágúst, prentaðar á Canon PIXMA Pro9500 A3+ ljósmyndaprentara.........mig langar að fræðast nánar
Nú stendur yfir einkasýning Ómars Óskarssonar “Í ríki fuglana” en Ómar hefur um langt árabil stundað fuglaljósmyndun samhliða starfi sínu sem ljósmyndari á Morgunblaðinu, en myndir hanns af fuglum á síðum blaðsins hafa jafnan vakið mikkla athygli, og hafa unendur þeirra beðið eftir þessari sýningu lengi.........mig langar að fræðast nánar
Ljósmyndasýning í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík á laugardaginn kl. 14:00 en sýningin verður opin til 17. maí
Hugmynd að verkefninu himinn og jörð vaknaði þegar ég var að fara í starfsviðtal til Ólafsfjarðar í janúar 2010. Ég staldraði við í Múlanum og þar blasti Grímsey við en þangað hafði ég komið og notið þess að skoða fallegt landslagið heimsækja góða vini og njóta.
Leifur Þorsteinsson Ljósmyndari er næsti gestafyrirlesari í fyrirlestraröð Ljósmyndarafélags Íslands og Þjóðminjasafnsins. Leifur mun í þessum fyrirlestri ræða mannlfs og götulífsmyndir sýnar frá Kaupmannahöfn.
Leifur hefur lengi verið í fremstu röð Íslenskra ljósmyndara og ófáir sem fengið hafa visku sína úr hans óendanlega brunni. Það er mikill fengur fyrir ljósmyndarafélagið að fá Leif til frásagnar og ljóst að hér verður örugglega stórskemtileg stund sem hægt er að hvetja alla til að mæta á.
Leifur Þorsteinsson.Frá sýningu Leifs Þorsteinssonar í ljósmyndasafni Reykjavíkur
Ljósmyndakaffi Ljósmyndasafns Reykjavíkur verður haldið næstkomandi föstudag klukkan 12. Í fyrstu lotu munu ljósmyndararnir Guðmundur Ingólfsson, Bára og Sissa spjalla við Leif Þorsteinsson um ljósmyndun. Ætlunin er að halda fjögur ljósmyndakaffi á næstu mánuðum þar sem einn ljósmyndari er tekinn fyrir og spurður út úr af hinum ljósmyndurunum sem nefndir eru hér að framan. Boðið verður upp á kaffi eins og heitið gefur til kynna.
Björn Ingi hefur fyrir hönd útgafufélagsins Vepressan ehf sent frá sér fréttatilkynning um að frá og með deginum í dag verði hart tekið á höfundaréttarbrotum innan allra miðla Pressunnar. Stafsmen á Eyjunni, Pressunni, Menn.is og Bleikt.is munu í dag verða sendir á námskeið í höfundarétti til að koma í veg fyrir í eitt skipti fyrir öll að atburðir eins og í vikunni, þar sem höfundaréttavarðar myndir voru birtar á Menn.is án leyfis, gerist aftur.
Björn Ingi sagðist í samtali við sjónarmið vera mjög leiður yfir því hverng litið væri á miðla hans sem þjófótta og sérstaklega þótti honum sem þjófsstimpillinn sem hann hefur persónlega fengið á sig slæmur. Vildi Björn meina að hann hafi aldrei gert neitt er orkaði tvímælis. Hann vildi meina að framkoma sjónarmiða í sinn garð jaðraði við einelti og ekki væri það fallega gert að kalla hann björnebanditen, en játaði samt því að ekki væru allir hlutir alveg eins og þeir ættu að vera á miðlum hans. En ítrekaði að það væri ekki honum að kenna heldur frekar Denna.
Leifur Þorsteinsson, ljósmyndari, sýnir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 15 myndir af Landsmiðjunni gömlu sem nú er horfin. Myndin er annar hluti sýningarraðar Leifs, Sýningarröð 2011.
Leifur tók myndirnar árið 1966, fyrir Iðnsýningu Reykjavíkur og tók þá líka myndir af eldsmiðjunni, en þær voru ekki sýndar á Iðnsýningunni, þar sem sá verkþáttur þótti gamaldags. Myndirnar sýna bæði menn að störfum, sem og vinnuaðstöðuna í Landsmiðjunni. Sýningin verður opnuð í dag og stendur til 8. maí.
Þið verðið að fyrirgefa mér að gera ekki einu sinni tilraun til þess að þýða titilinn enda vissi ég ekkert hvernig ég ætti að snúa mér í því svo eitthvert vit væri í honum. Hvað um það þá hefur society for Imaging Science and Technology gert aðgengilega á vefnum þá fyrirlestra sem voru á síðustu ráðstefnu CIC.........mig langar að fræðast nánar
Eitt athyglisverðasta verkefni síðari ára í flokki heimildarljósmyndunar og frétta, Bastrack tilraunin eins og verkefnið var kallað hefur nú endanlega verið skotið niður ef svo má segja af amerískum yfirvöldum. Samt sem áður ætla upphafsmenn verksins að halda áfram með tilraunina því þrátt fyrir allt þá gafst hún að mörguleyti vel og hefur ........mig langar að fræðast nánar