Fréttir af því nýjasta sem er að gerast í linsum frá ýmsum framleiðendum eins og Canon, Nikon, Sigma, Tamron, Leica, Sony, Zeiss og fleirum

  • Canon EF 400mm f/2.8L IS II

    Canon EF 400mm f/2.8L IS II inniheldur sömu grunnbreytingar og hin nýja 300mm f/2.8, nema hvað varðar festifótinn fyrir þrífótarfestingu enda hafði gamla linsan slíkann festifót. Hún er með innbyggða þrífótarfestingu, hljóðlátari og þrífótarvinalegri hristivörn sem er ígildi 4 stoppa í hraða og á að höndla myndgæði betur, þar með talið litabrenglanir.........mig langar að fræðast nánar

  • Canon EF 300mm f/2.8L IS II

    Canon EF 300mm f/2.8L IS II. Þett ku vera 6 útgáfan af þessri linsu frá því að hún var kynnt til sögunnar í kringum 1974. Hún er nokkuð léttari en gamla linsan og munar þar um 8% sem teljast verður all nokkuð. Hún er með innbyggða þrífótarfestingu, hljóðlátari og þrífótarvinalegri hristivörn sem er ígildi 4 stoppa í hraða og á að höndla myndgæði betur, þar með talið litabrenglanir.........mig langar að fræðast nánar

  • Canon 70-300mm f/4-5.6L IS

    Canon 70-300mm f/4-5.6L IS er enn ein ný eða nýlega uppfærð linsa frá Canon. Því er lofað að myndgæðin séu nú enn betri en áður með þessari linsu jafnframt því að í henni er hristivörn ígildi fjögurra stoppa hraða sem og að hún er nú hvít að lit. Breytingar á þessari vinsælu Canon linsu eru því nokkrar.........mig langar að fræðast nánar

  • Canon Extender EF 1.4x III og Extender EF 2x III

    Mikil breyting í skerpu og myndgæðum yfir allt sjónsviðið er sögð prýða þessa framlengingarlinsu og ætti það að sjást vel sérstaklega þegar þessar nýju framlengingar Extender EF 1.4x III eða Extender EF 2x III eru notaðar með einhverjum af þeim nýju linsum sem nú koma á markað. Að hluta til er það betri gæðum í glerjum að þakka.........mig langar að fræðast nánar

  • Canon EF 8-15mm f/4L Fisheye

    Canon hefur nú sent frá sér nokkrar nýjar linsur og uppfærslu á eldri linsum. Meðal nýjunga nú er er Þessi fiskaugalinsa  sem hönnuð er með það fyrir augum að gefa 180° hirnglaga mynd á normal myndflögu. Þar sem þetta er þys linsa gefur hún einnig 180 á myndflögu með myndskurði í 1.6.

    ........mig langar að fræðast nánar

  • Nikkor AF-S DX 55-300mm f/4.5-5.6G ED VR

    Nikkor AF-S DX 55-300mm f/4.5-5.6G ED VR

    Þessi nýja linsa frá Nikon sem ættluð er hinum venjulega notanda myndavéla með DX formati sem ferðast mikið er seld sem hin besti fylgisveinn 18-55mm linsunnar sem fylgir með hinni nýju D3100 myndavél frá Nikon. The AF-S DX 55-300mm f/4.5-5.6G ED VR linsan er með hinu nýja Silent wave sjálfvirka fókuskerfi,image stabilization with Tripod Detection Mode, níu blaða ljósops hring, einum hópi (HRI) glerja og tveimur hópum ED glerja sem og með hnapp fyrir sjálfvirkan og handheldan fókus.


    ........mig langar að fræðast nánar

  • Nikkor AF-S 28-300mm f/3.5-5.6G ED VR

    Nikkor AF-S 28-300mm f/3.5-5.6G ED VR

    Með  10.7x þysjun hefur AF-S 28-300mm f/3.5-5.6G ED VR lengsta þysjunarsvið sem nokkur linsa FX linsa frá Nikon hefur og er aðeins stigsmun frá því að spanna sama þysjunarsvið upp á 11.1x stækkun sem AF-S DX 18-200mm f/3.5-5.6G IF-ED linsan gerir, hún er aftur á móti ætluð fyrir minni myndflögur.


    ........mig langar að fræðast nánar

  • Nikkor AF-S 24-120mm f/4G ED VR

    Nikon AF-S 24-120mm f/4G ED VR þys linsa

    Algjör endurhönnun hefur átt sér stað á þessari linsu frá Nikon. og eru breytingarnar töluverðar frá núverandi 24-120mm. Nýja linsan hefur til að mynda f.4 út allt brennivíddarsviðið. Linsan er með hinu nýja Silent wave sjálfvirka fókuskerfi, fjögurra stoppa (VRll) hristivörn, níu blaða ljósops hring, tvo ED glerja hópa og þrjá aspherical linsu hópa, innri fókus kerfi, Nano Crystal gler húðun, þekur FX svið og er með nýjan hnapp fyrir sjálfvirkan og handheldan fókus.


    ........mig langar að fræðast nánar

  • Nikon AF-S 85mm f/1.4G

    Nikon AF-S 85mm f/1.4 er ein af uppfærslunum frá Nikon sem beðið hefur verið eftir. Þessi vinsæla portretlinsa inniheldur nú Silent Wave sjálfvirkan fókus, níu blaða ljósopi, nano Crystal húðun á gleri, innri fókuskerfi, þekur fx snið og er með tveggja sviða m/A - A hnapp fyrir sjálfvirkan eða handvirkan fókus.


    ........mig langar að fræðast nánar

  • Tamron SP 70-300mm Di VC USD fyrir Nikon

    Tamron hefur sent frá sér nýja aðdráttarlinsu fyrir stafrænar myndavélar með brennivíddina 70 - 300mm og festiplötu fyrir Nikon myndavélar en von er á linsunni fyrir Canon og Sony myndavélar einnig. Linsan sem nefnist SP 70-300mm Di VC USD er með Ultrasonic sjálfvirkan fókus og hristivörn sem þeir velja að nefna VC eð vibration Compensation. Stærsta ljósop á linsunni er F 4/5.6........mig langar að fræðast nánar