Canon EF 400mm f/2.8L IS II inniheldur sömu grunnbreytingar og hin nýja 300mm f/2.8, nema hvað varðar festifótinn fyrir þrífótarfestingu enda hafði gamla linsan slíkann festifót. Hún er með innbyggða þrífótarfestingu, hljóðlátari og þrífótarvinalegri hristivörn sem er ígildi 4 stoppa í hraða og á að höndla myndgæði betur, þar með talið litabrenglanir.........mig langar að fræðast nánar
Canon EF 300mm f/2.8L IS II. Þett ku vera 6 útgáfan af þessri linsu frá því að hún var kynnt til sögunnar í kringum 1974. Hún er nokkuð léttari en gamla linsan og munar þar um 8% sem teljast verður all nokkuð. Hún er með innbyggða þrífótarfestingu, hljóðlátari og þrífótarvinalegri hristivörn sem er ígildi 4 stoppa í hraða og á að höndla myndgæði betur, þar með talið litabrenglanir.........mig langar að fræðast nánar
Canon 70-300mm f/4-5.6L IS er enn ein ný eða nýlega uppfærð linsa frá Canon. Því er lofað að myndgæðin séu nú enn betri en áður með þessari linsu jafnframt því að í henni er hristivörn ígildi fjögurra stoppa hraða sem og að hún er nú hvít að lit. Breytingar á þessari vinsælu Canon linsu eru því nokkrar.........mig langar að fræðast nánar
Mikil breyting í skerpu og myndgæðum yfir allt sjónsviðið er sögð prýða þessa framlengingarlinsu og ætti það að sjást vel sérstaklega þegar þessar nýju framlengingar Extender EF 1.4x III eða Extender EF 2x III eru notaðar með einhverjum af þeim nýju linsum sem nú koma á markað. Að hluta til er það betri gæðum í glerjum að þakka.........mig langar að fræðast nánar
Canon hefur nú sent frá sér nokkrar nýjar linsur og uppfærslu á eldri linsum. Meðal nýjunga nú er er Þessi fiskaugalinsa sem hönnuð er með það fyrir augum að gefa 180° hirnglaga mynd á normal myndflögu. Þar sem þetta er þys linsa gefur hún einnig 180 á myndflögu með myndskurði í 1.6.
Canon fyrirtækið í Japan tilkynnti nýlega að það hefði náð þeim einstaka árangri að framleiða 50. miljónustu EF linsuna. Það mun hafa verið linsa af gerðinni EF100mm f/2.8L Macro IS USM. ........mig langar að fræðast nánar
Canon hefur bætti nýrri linsu við hið mikla úrval af L linsum sem frá fyrirtækinu hafa komið. Linsan er EF 70-200mm f/2.8L IS II USM aðdráttarlinsa og er ný útgáfa af þessari vinsælu linsu en miklar endurbætur hafa verið gerðar á linsunni.
Meðal þess sem má finna er endurbætt glerja kerfi sem nú telur 23 gler í 19 hópum og á að auka öll áhrif. Hágæða Fluorit element hjálpa til við að varna lit-hliðrun (chromatic abberation) í linsunni ásamt 5 UD (ultra-low dispersion - varnar tvístrun geisla) hjálpa til við að minka lithliðrun á allri brennivíd og tryggja með því skerpu og kontrast horna á milli. ........mig langar að fræðast nánar