Nýjustu fréttir af myndavélum og myndavélaþróun frá ýmsum þekktum og óþekktum framleiðandendum eins og Hartblei, GoPro, Canon, Nikon , Fuji , PhaseOne ofl
Kristjan Logason. Mynd tekin með Kodak DCS PRo SLR/n
Það eru ekki fagrar sölutölurnar sem hafa verið birtar fyrir stóru nöfnin í heimi ljósmyndunnar og mörg þekkt nöfn úr ljósmyndasögunni sem skipt hafa um eigendur á síðustu árum. Agfa, Mamiya, Ilford og síðast Hasselblad sem komið er úr Sænskri eigu yfir í hendur Japanskra eigenda.........mig langar að fræðast nánar
Hvort sem þú ert að æfa fyrir járnkallinn og þarft myndavél sem þolir sull og svita eða bara vilt hafa með þér létta vél þagar þú villist á næsta fjalltopp þá er tilvalið að veita athygli hinni nýju myndavéla frá Panasonic sem hlotið hefur nafnið Panasonic LUMIX TS3 því ef þú villist ætti hún að koma þér á sporið á ný, en ekki nóg með það hún ætti að........mig langar að fræðast nánar
Rétt þegar menn héldu að megapixlastríðiðnu væri lokið í bili þá sendir danski myndavéla og bakstykkjaframleiðandinn Phase One frá sér tilkynningu um að nýtt bakstykki með heila 80 megapixla sé á leið á markað.
Þróun og breytingar á markaðinum fyrir milliformats vélar og bakstykki hefur ekki verið jafn ör eins og í tækni 35mm og minni véla enda sá markaður mun minni og menn fara því varlegar í sakirnar. Það er ekki þar með sagt að ekki sé eitthvað að gerast og í raun má segja að hér eigi við að góðir hlutir gerast hægt........mig langar að fræðast nánar
Það er enginn sem með góðri samvisku getur tekið myndir á myndavél sem er stolin. Nú hefur þú hinsvegar tækifæri til þess. Það er svolítið merkilegt að geta með góðri samvisku keypt stolna myndavél af lögreglunni í þokkabót.........mig langar að fræðast nánar
Það má með sanni segja að á síðasta Photokina hafi ein myndavél komið öllum nokkuð mikið á óvart, en það var Fuji Finepix X100 vélin sem er stafræn "rangefinder" vél með áfastri linsu. Vélin fór vel í hendi og lofar alveg einstaklega góðu. Eiginlega svo góðu að langt er síðan löngun hefur verið jafn mikil í nýja myndavél. Þeir sem eru vanir að handleika vélar sem þessar eins og gamlar og góðar Canon vélar af svipaðri stærð verða örugglega áfjáðir að ná sér í eina. Leica mönnum þykir Fuji X100 kanski aðeins of lítil og létt og ókostur að ekki skuli hægt að skipta um linsu. En hvað með það, nú er hægt að panta eina........mig langar að fræðast nánar
Aðeins viku eftir að þýskt ljósmyndablað lak óvart fréttum af Nikon D3100 er komin opinber yfirlýsing um það sem allir þó þegar vissu. Vélin nýja sem skartar 14.2MP, DX Format, CMOS myndflögu gefur möguleika á iso sviði frá 100-3200 og er með nýjann EXSPEED 2 örgjörfa. Með vélinni má taka myndskeið í 1080p upplausn og ein sú fyrsta í heimi dslr myndavéla sem hefur sjálfvirkan fókus á meðan verið er að taka upp myndskeið.
Segja má að hin nýja smámyndavél sem Fuji hefur nú sent frá sér skapi nýja vídd í ljósmyndun. Ekki einvörðungu þegar litið er til þess að vélin er sérhönnuð til þess að taka ekta þrývíddarmyndir heldur hefur hún á að skipa ýmsum öðrum möguleikum sem gera þessa vél að stórskemmtilegu leiktæki.
Sinar myndavélakerfið er nú loks orðið enn aðgengilegra en það var áður og er nú hægt að nýta það í tengslum við ýmiss stafræn bakstykki frá samkeppnisaðilunum. Samkvæmt Sinar þá eru nýlegar breytingar sem gera þurfti við hönnun þess eðlis að viðbót við þær breytingar opnar nú möguleika á því að nota bakstykki frá fleiri aðilum en Sinar.........mig langar að fræðast nánar
Getty risinn á markaði myndasafnsmynda hefur nú staðfest við British journal of Photography að litla vélin frá Leica,Leica x1 hafi komist á lista hjá Getty yfir þær myndavélar sem þykja skila nægum gæðum svo hægt sé að senda inn myndir til skoðunar úr þeim.........mig langar að fræðast nánar
Það má eiginlega segja að þessa dagana þá hafi ég atvinnu af því að vera nostalagíu nörd. Hvað annað mætti kalla þá vinnu að sjá um og safn gömlum myndum til varðveislu og dreifingar. Í því sambandi rifjaðist upp fyrir mér um daginn að ein fyrsta alvöru myndavélin sem ég handlék var Olympus og ég man ekki betur en það hafi verið om2.........mig langar að fræðast nánar