Aðeins viku eftir að þýskt ljósmyndablað lak óvart fréttum af Nikon D3100 er komin opinber yfirlýsing um það sem allir þó þegar vissu. Vélin nýja sem skartar 14.2MP, DX Format, CMOS myndflögu gefur möguleika á iso sviði frá 100-3200 og er með nýjann EXSPEED 2 örgjörfa. Með vélinni má taka myndskeið í 1080p upplausn og ein sú fyrsta í heimi dslr myndavéla sem hefur sjálfvirkan fókus á meðan verið er að taka upp myndskeið.
Nikon hefur sett á markað nýja myndavél sem flokka má með myndavélum sem hafa sérdeilis mikin aðdrátt í linsu. Nýju myndavélina kalla Nikon menn P100 en með henni fylgir linsa sem spannar 26x aðdrátt og getur tekið upp myndskeið í hágæðum. ........mig langar að fræðast nánar
Nikon hefur tilkynnt að ný 12mp myndavél sé væntanleg á markað innan skamms.
Hin nýja myndavél Nikon D3S sem kemur einungis tveimur árum eftir forvera sinn hefur 7 stoppa range frá 200 Iso að 12800 ásamt þremur öðrum stillingum sem auðvelda eiga ljósmyndurum að ná mynd í því sem teljast myndi jafngilda 102400 ISO.