120mb CMOS myndflaga frá Canon

Tag: Canon, Fréttir, Tækni
120mb CMOS myndflaga frá Canon

Rétt á meðan menn bíða spenntir eftir fréttum af stærð nýrrar myndflögu í Canon 1Ds MklV sendir Canon frá sér fréttatilkynningu sem eftir á að valda miklum titringi á meðal myndavélaframleiðenda heims. Heil 120mb mun þessi nýja myndflaga af gerðinni APS-H-size CMOS  vera og þar með slá öll fyrri met sem sett hafa verið. Það sem vekur athygli í fréttatilkynningunni er að þetta er myndflaga þeirrar gerðar sem staðfest hefur verið að verður í hinni nýju Mk lV. Hvort hún verður svona stór skal ósagt látið en þessar fréttir gefa tilefni til þess að ljósmyndarar fái ívið stærri myndflögu en þeir reiknuðu með.

Þegar bornar eru saman núverandi myndflögur og þessi sést hversu gríðarlegur munur er á hinni nýju og þeim eldri. Þær eldir sem eru með 16,1 miljón pixla en sú nýja með 120 miljón pixla eða 7.5 sinnum meiri fjölda og 2.4 sinnum meiri upplausn.

Þessi nýja myndflaga er með fullan stuðning við HD (1920 x 1080) myndskeið og getur skilað þeirri upplausn frá hverjum hluta myndflögunnar sem er uþb 1/6 af stærð hennar. Þetta þýðir í reynd alveg hreint ótrúlega þysjun niður í minstu smáatriði í fullum HD gæðum.

Myndir teknar með hinni nýju myndflögu eru þrátt fyrir þysjun og myndskurð með meiri gæði og skerpu en nokkru sinni áður hefur þekkst.

Með þessari nýju myndflögu tekur Canon stórt stökk framávið á þróunarbrautinni og ekki er þess lengi að bíða að stafrænar myndavélar muni skila meiri gæðum en nokkur möguleiki er á að jafnvel stærstu filmur geri.