Basetrack verkefnið skotið niður.

Basetrack verkefnið skotið niður.

Eitt athyglisverðasta verkefni síðari ára í flokki heimildarljósmyndunar og frétta, Bastrack tilraunin eins og verkefnið var kallað hefur nú endanlega verið skotið niður ef svo má segja af amerískum yfirvöldum. Samt sem áður ætla upphafsmenn verksins að halda áfram með tilraunina því þrátt fyrir allt þá gafst hún að mörguleyti vel og hefur þótt afar athygliverð. Hér var raunverleikin kaldur og harður og nær raunverlueikavarpi vart hægt að komast.


Basetrack verkefnið fæddist í huga Terry Kuwayama sem er heimildar og fréttaljósmyndari sem og áhugamaður um nýja miðlun. Hann er einn af aðstandendum og upphafsmönnum  heimasíðu eins og Lightstalkers.org  sem er einskonar heimavöllur fréttaljósmyndara. Terry hefur einnig fengist við ýmsar tilraunir í nýmiðlun og þegar honum bauðst tækifæri til að fylgjast með og mynda 1 herfylki 8 deildar við störf í Afghanistansótti hann sér styrk til að setja á laggirnar eitt metnaðarfyllsta og skemmtilegasta verkefni síðari ára.



Balazs Gardi/Basetrack.org


Hópur ljósmyndara skyldi fylgja herdeildinni í hvert fótspor og og skrá líf þeirra öllum stundum með eins mismunandi tækjum eins og Iphone og myndavélum sem og myndbandstökuvélum. Allt efni yrði á boðstólum á opinni vefsíðu, sem og á fésbókinni og gert aðgengilegt öllum til að njóta, þar með talið myndir undir creative commons leyfi.


Eftir að haf fylgt herdeildinni eftir í 6 mánuði skrúfaði ameríski herinn fyrir verkefnið og sagði hingað og ekki lengra. Ekki vegna myndanna né heldur fréttaflutningsins, heldur fyrst og fremst vegna athugsemda sem komu bæði á fésbókarsíðu sem og á heimasíðu verkefnisins.


Hugsun Tivadar Domaniczky, Balazs Gardi and Teru Kuwayama með verkefninu var að byggja einskonar brú á milli hermannanna og fjölskyldna þeirra heima við og sjá til þess að fjölskyldurnar fengju sem gleggsta mynd af hermönnunum og lífi þeirra á hverjum tíma. Segja má að í þessum þætti hafi þeim tekist einstaklega vel til og “fjölskyldudeildin” verið ánægð með framtakið.


Verkefnið er ekki einvörðungu áhugavert út frá félagslegu sjónarmiði eða heimildarlegu sjónarmið, heldur einnig út frá tæknilegu sjónarmiði og spurningum sem vakna um ljósmyndun og framtíð hennar. Sérstaklega fréttaljósmyndun sem er að breytast ört.



Balazs Gardi/Basetrack.org


Á Íslandi sáum við þessa breytingu vel í byltingunni þegar lögregla átti í vandræðum með að vita hver er ljósmyndari og hver er ekki, hver er fréttamaður og hver ekki, enda nútíma miðlun farin að má út þessi skil og allir sem eiga síma eru nú orðnir fréttamenn og geta miðlað myndum og fréttum. Það sést vel á nýlegum fréttamiðlunum eins og Demotix sem nú hefur m.a gert samning við Corbis um frekari miðlun efnis.


Þetta sáuum við líka í Egyptalandi á dögunum og í  raun um víða Afríku sem og víðar. Tilraunir yfirvalda til að stemma stigu við fréttum rann út í sandinn því ekki lengur var hægt að ganga að “ljósmyndaranum” og  gera upptækar filmur hans eða minniskort (sem gerðist þó umvörpum) , því hver var ljósmyndarinn og hver ekki var nærri ómögulegt að greina og fréttamyndir komnar á flakk um vefmiðla um leið og þær voru teknar.


Þó framtíð basetrac verði ekki mikið lengr þá mun viðmótið sem notað var, verða til staðar og öllum opið til niðurhals og notkunar svo fremi það falli að ákveðnum skilmálum. Það verður spennandi að fylgjast með frekari þróun á verkefninu og öðrum hliðarverkefnum sem útfrá því koma. Mesta spennan verður þó sú hvert þetta verkefni leiðir nútíma fréttaljósmyndun.


Á síðasta ári seldust jú fleiri símar með myndavél en smámyndavélar. Hvaða áhrif mun slíkt hafa á heimsþróun og jafnvel valdastöðu því nú geta yfirvöld síður haft stjórn á fréttaflutningi en áður.


Kynnið ykkur meira um málið á heimasíðu basetrack.org.


Þá er grein um basetrack í British journal of photography


Wired tímaritið hefur einnig skrifað um Basetrack verkefnið


Sem og margir aðrir enda sýnist sitt hverjum um verkefnið sem og um ágæti þess að Iphone myndir skuli verðlaunaðar á Worldpresas Photo