Björn Ingi bætir ráð sitt - forsýning á Bang bang club

Björn Ingi bætir ráð sitt - forsýning á Bang bang club

Björn Ingi hefur fyrir hönd útgafufélagsins Vepressan ehf sent frá sér fréttatilkynning um að frá og með deginum í dag verði hart tekið á höfundaréttarbrotum innan allra miðla Pressunnar. Stafsmen á Eyjunni, Pressunni, Menn.is og Bleikt.is munu í dag verða sendir á námskeið í höfundarétti til að koma í veg fyrir í eitt skipti fyrir öll að atburðir eins og í vikunni, þar sem höfundaréttavarðar myndir voru birtar á Menn.is án leyfis, gerist aftur.


Björn Ingi sagðist í samtali við sjónarmið vera mjög leiður yfir því hverng litið væri á miðla hans sem þjófótta og sérstaklega þótti honum sem þjófsstimpillinn sem hann hefur persónlega fengið á sig slæmur. Vildi Björn meina að hann hafi aldrei gert neitt er orkaði tvímælis. Hann vildi meina að framkoma sjónarmiða í sinn garð jaðraði við einelti og ekki væri það fallega gert að kalla hann björnebanditen, en játaði samt því að ekki væru allir hlutir alveg eins og þeir ættu að vera á miðlum hans. En ítrekaði að það væri ekki honum að kenna heldur frekar Denna. 


Björn Ingi sagðist allt vilja gera til að bæta þá ímynd sem miðlar hans hafa og sór og sárt við lagði að mjög hart yrði tekið á öllum brotum hjá starfsfólki hans í framtíð. Sagði hann að nú hefði verið prentað út og límt á alla tölvuskjái fyrirtækisins setningin "þú skalt ekki stela" og að sú breyting hefði verið gerð á tölvum fyrirtækisins að nú opnuðust þær að morgni með skjámynd sem minnti starfsmenn á höfundarétt.


Til að bæta ímynd sína hefur Björn komist yfir stafrænt eintak af myndinni Bang bang club og  ætlar í samstarfi við eigendurna Salt investment, Vátryggingafélag Íslands og Norðurpól ehf að bjóða ljósmyndurum og áhugaljósmyndurum í bíó til að sýna sáttarhönd og velvilja til frekari sátta og sællar frambúðar.


Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta eintak af myndinni geta nálgast miða á skrifstofu útgáfufélags pressunnar eftir hádegi í dag og fram að sýngu en myndin verðu sýnd í Smárabíó kl 19:00. Hægt er að taka frá miða með því að hringja í skiptiborðið S:510-2220.


Þá má einnig hafa samband við Björn inga í netfangið bjorningi@pressan.is


Fyrir sýningu mun lögfræðingur Myndstef halda stuttan fyrirlestur um höfundarétt og samskipti við fjölmiðla.


Sjónarmið fagnar breyttu hugarfari Björns og félaga í útgáfufélaginu vepressan og vonar að þetta nýja hugarfar breytist ekki í bráð. Hvetur Sjónarmið alla áhugasama um ljósmyndun að ná sér í miða og njóta góðrar skemmtunar í Bíó og vonar að þetta sé endir þess að miðlar Björns og félaga birti þjófstolnar myndir. 


 


http://trailers.apple.com/trailers/independent/thebangbangclub/