Blaðaljósmyndarakeppni Canon
Blaðaljósmyndarakeppni Canon (BLC) er ný ljósmyndasamkeppni fyrir íslenska blaðaljósmyndara sem Nýherji, Kringlan og Blaðaljósmyndarafélag Íslands efna til í tengslum við World Press Photo sýninguna í Kringlunni dagana 16. júní - 7. júlí.
Í Blaðaljósmyndarakeppni Canon gefst íslenskum blaðaljósmyndurum kostur á að taka þátt í skemmtilegri keppni og vinna til glæsilegra verðlauna. Þá mun dómnefnd keppninnar velja 30 bestu myndirnar sem verða birtar á sérstakri ljósmyndasýningu í Kringlunni í lok ágúst, prentaðar á Canon PIXMA Pro9500 A3+ ljósmyndaprentara.
Glæsileg verðlaun
Í fyrstu verðlaun er Canon PowerShot G12, í önnur verðlaun Canon PowerShot S95 og í þriðju verðlaun Canon EF 50mm f/1.4 USM linsa.
Reglur eru eftirfarandi:
- Ljósmyndin þarf að vera tekin frá 1. janúar 2011 - 5. ágúst 2011.
- Skila þarf inn ljósmynd í fullri upplausn á netfangið canon@nyherji.is.
- Hver þátttakandi má skila að hámarki þremur ljósmyndum.
- Heimilt er að vinna myndir í tölvu en ekki má setja saman margar ljósmyndir.
- Þátttakendur þurfa að vera skráðir í Blaðaljósmyndarafélag Íslands.
- Nýherji og Kringlan áskilja sér rétt til að birta myndir úr keppninni í tengslum við keppnina og á sýningu í tengslum við keppnina.
Dómnefnd skipa: Christopher Lund, ljósmyndari, Birta Flókadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, og Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon neytendavara hjá Nýherja.




