Canon EF 400mm f/2.8L IS II
Canon EF 400mm f/2.8L IS II inniheldur sömu grunnbreytingar og hin nýja 300mm f/2.8, nema hvað varðar festifótinn fyrir þrífótarfestingu enda hafði gamla linsan slíkann festifót. Hún er með innbyggða þrífótarfestingu, hljóðlátari og þrífótarvinalegri hristivörn sem er ígildi 4 stoppa í hraða og á að höndla myndgæði betur, þar með talið litabrenglanir. Þá er innri mótor linsunnar nú hraðvirkari en áður og algrímið sem sér um sjálfvirkan fókus einnig. Hún er húðuð með fluorine á fram og afturglerjum og hvíti liturinn er nú jarðbundari en áður.
Linsan er með nýjan valmöguleika í hristivörninni sem varnar því að hristivörnin fari í gang þar til kemur að því að smella af. Þetta hjálpar þeim ljósmyndurum s4em verða fyrir truflun af því að sjá virkni hristivarnarinnar í gegnum sjóngluggan þegar verið er að fylgja eftir myndefni á hreifingu. Þá er einnig á linsunni auga þar sem hægt er að setja í læsingu með keðju eða lás.
Canon EF 400mm f/2.8L IS II linsan hefur hins vegar verið send í megrun og er hún nokkuð le´ttari en sú gamla eða heilum 28%. Það gerir hana ótrúlega le´tta miðað við linsu af þ





