Canon Extender EF 1.4x III og Extender EF 2x III
Mikil breyting í skerpu og myndgæðum yfir allt sjónsviðið er sögð prýða þessa framlengingarlinsu og ætti það að sjást vel sérstaklega þegar þessar nýju framlengingar Extender EF 1.4x III eða Extender EF 2x III eru notaðar með einhverjum af þeim nýju linsum sem nú koma á markað. Að hluta til er það betri gæðum í glerjum að þakka. Báðar linsuframlengingarnar eru samhæfðar við allar þær linsur sem Canon hefur framleitt og hafa hingað til getað notað framlengingu. Áætlað er að framlengingarnar komi á markað í Desember.





