Ert þú með hreint mjöl í pokahorninu

Vong Wong

Það er ekki alltaf sem menn fara hefðbundnar leiðir til þess að fá auka effekt í annars hreina bakgrunna. Reyk maskinana er jú vel þekkt dæmi en getur á stundum virkað hallærislega og svo á reykur það til að fara milli linsu og mótífs og draga þannig úr skerpu.


Ein leið til þess að skapa kraft í myndir af hreyfingu er að fá lánað svolítið mjöl hjá mömmu, td hveiti eða annað fínt mjöl. Því má síðan blása með ýmsum tækjum og tólum eða fá aðstoðarmann til að kasta því inn í myndina um leiða og smellt er af.


Með slíku móti er hægt að hafa betri stjórn á þokumynduninni og skapa skemmtilega stemmningu eins og Benjamin Von Wong gerir í eftirfarandi myndbandi


 


Behind the scenes -Flour dancers from Eva Jinn Productions on Vimeo.