Eru endalok alheims ofin í endalok Kodak

Hospital photograph taken with Kodak DCS PRo SLR/n

Það eru ekki fagrar sölutölurnar sem hafa verið birtar fyrir stóru nöfnin í heimi ljósmyndunnar og mörg þekkt nöfn úr ljósmyndasögunni sem skipt hafa um eigendur á síðustu árum. Agfa, Mamiya, Ilford og síðast Hasselblad sem komið er úr Sænskri eigu yfir í hendur Japanskra eigenda. Aðilar eins og Nikon og Canon eru með verri sölutölur fyrir síðasta ár og hlutabréf hafa fallið í verði á meðan Sony stelur senunni og eykur við sig í sölu myndavéla. Verð á myndavélum til almennings hefur hrapað og síðast í gær tilkynnti Sigma lækkað heildsöluverð á linsum sínum. Á síðasta ári voru seldir fleiri símar með smámyndavél inbyggðri, en seldar voru smámyndavélar í heild.


Einn sá aðili  sem á einna mestann þátt í útbreiðslu ljósmyndunnar meðal almennings og hefur verið risinn á markaði lengi, er nú ekki lengur einungis haltur, heldur kominn að fótum fram og hafa hlutabréf hrunið 95% í verði og ekkert lát virðist vera á óförum þeirra en nýlega töpuðu þeir enn einu málinu um einkaleyfi og virðist farið að fjúka í flest skjól.


Svo slæmt er orðsporið að forstjórinn sem er á ofurlaunum er sagður ekki látinn fara, því menn óttast að enginn vilji taka við þessum halta hesti og fátt eitt sýnist í kristalkúlunni geta bjargað fyrirtækinu frá endanlegu falli. Viljir þú eignast Kodak þá er það örugglega hægt núna fyrir lítið fé.


Maya Indiánar í Guatemala boðuðu breytingar á heimsmyndinni árið 2012 og þó svo sumir hafi gengið svo langt að kalla boð þeirra endalok alheims held ég að svo verði nú ekki. Breytingar eru hins vegar á döfinni og þeir sem ekki hafa náð afgerandi fótfestu í heimi stafrænnar þróunnar munu eiga í erfiðleikum. Hvað verður um Kodak sem hefur farið úr því í seinni tíð að framleiða filmur fyrir myndavélar yfir í það að framleiða myndflögur, er ekki auðvelt að segja en sú stafræna vara sem þeir nú bjóða upp á er hvorki betri né sérstæðari en það sem aðrir bjóða.


Svo getur því farið að það fyrirtæki sem einna fyrst var á markað með „full frame“ 35mm stafræna myndavél, verði einnig það stór fyrirtæki sem fyrst kemur til með láta undan þeim breytingum sem nú eiga sér stað. Þrátt fyrir að eiga einhvað af einkaleyfum sem fyrirtækið lifir á í dag hefur þeim tekist illa upp við að fá ná í ný leyfi eða standa að nýjungum í  þróun stafrænnar vöru. Oft hafa þeir setið með vöru sem hægt hefði verið að þróa en gloprað niður tækifærinu og ekki séð hvað þeir áttu í hendi,  líkt og umpólunarforrit þeirra sem var langt á undan sinni samtíð, og bæði Aperture og Lightroom hafa byggt á. Svo virðist sem aðrir séu ávallt skrefinu á undan og örfáum vikum eftir tilkynningar Kodak koma aðrir með eitthvað enn betra, rétt eins og gerðist með Kodak DCS Pro vélina og Canon 1DS MKll. Það er fát og fum sem virðist hafa einkennt fyrirtækið frá því að kröfur hlutafa urðu hærri kröfunum um að framleiða gæðavöru og það fát og niðurskurður í starfsemi ásamt leit að patentlausnum til að þóknast hluthöfunum hefur leitt fyr9irtækið í þver öfuga átt.


 Hlutabréf fyrirtækisins hafa nú hlotið útnefninguna verstu hlutabréf ársins 2010.


 


Endalok Kodachrome filmunar gæti því verið fyrsta skrefið í endalokum Kodak fyrirtækisins í heild.