Heimsins stærsta ljósmynd

Tag: Canon, Fréttir, Tækni
Heimsins stærsta ljósmynd

PORTLAND, Ore. – Jan. 13, 2011 – Samkeppnin um að búa til Heimsins stærstu stafræna ljósmynd var í fullum gang á árinu 2010 . Panorama myndir voru teknar víða að all frá Dresden til Dubai til Rio de Janeiro. Stærð þessara samsettu mynda sprak út, og nú hefur enn stærri gígapixla mynd frá Shanghai tekið sér stöðu sem stærsta myndin. Myndin hefur lokatöluna 272 gigapixla og ef hún væri prentuð út myndi hún vera á við 7007 risaauglýsingaskilti. Hægt er að sjá þessa mynd og þysja fram og aftur í henni og skoða ótrúleg smáatriði úr dagleg lífi í einni af stærstu borgum heims á heimasíðu Gigapan.com


Ljósmyndarinn Alfred  Zhao tók þessa ótrúlegu mynd af  Shanghai og notaði til þess GigaPan EPIC Pro véldrifið myndavélastatíf á þrífæti. Zhao fékk sína hughrifun eftir að hafa séð risamyndir síðastliðins  árs eins og hina 26 gígapixla mynd af Dresden sem gerð var af þýska ljósmyndaranum Holger Schulze í Desember 2009. Á þeim tíma var það álitin stærsta mynd í heimi. Aðeins einu ári síðar hefur  Zhao’s skapað mynd sem er meira en 10 sinnum stærri.


Zhao tók myndirnar með  Canon 7D myndavél með 400mm f 5.6 linsu og 2x teleconverter sem fest var á  GigaPan’s EPIC Pro véldrifið höfuð, hann tók 12,000 myndir á þeim 8 tímum sem það tók að gera myndina . Með aðstoð verkfræðinga hjá GigaPan þeirra Randy Sargent og Paul Heckbert, var myndin svo að lokum sett saman og birt á heimasíðu  GigaPan.com.

Prentuð í normal prent upplausn þyrfti að þekja 7000 risa auglýsingaskilti til að skapa eina samfellu

Ummæli

Sun, 16/01/2011 - 17:46

Ég fékk skemmtilega athugasemd á fésbókinni frá Ólafi Haraldssyni við þessari frétt.
Þar sem Ólafur er þeirra manna fróðastur sem ég veit um í tengslum við panoramamyndir í þesum stíl fór ég þess á leit við hann að fá að birta þessar athugasemdir okkur leikmönnum í þessum geira til frekari skilnings. hér er fyrst fyrsta athugasemdin sem hann gerði


Þetta er nú barasta frekar ógeðslegt, samt ekki það versta sem fólk er að gera í þessu...

Það er ekki fræðilegur möguleiki á því að myndin sé svona stór, reiknaði dæmið...

Það hefur líka komið í ljós galli í AutoPano Pro/Giga sem gefur út of stóra og vitlausa upplausn úr stórum myndum sem koma úr því.

Sem og linsulega séð er þetta ekki hægt, linsan er í raun löngu búin að brotna niður við þessa upplausn, fínt að prufa að zooma alla leið inn í myndina.

Verið er að vinna að stærðfræði formúlu sem gefur raunstærð á svona myndum, hún ætti að verða ready á þessu eða næsta ári...

Dæmi þeir sem vilja.

http://gigapan.org/gigapans/66626/



Þegar ég sótti á hann að fræða okkur fúskarana í þessum efnum nánar frábað hann sér það sökum anna við mastersritgerð en sendi þessar línur okkur til glöggvunar.


skal nefna nokkra hluti.

Ef ég reikna þetta sirka rétt þá eru þetta um 111.451.255.603 sjánleigir pixlar sem er mögulega hægt að fanga á vélinni með þessum fjölda og sjónsviðinu.

Þá á eftir að reikna í dæmið það "overlap" sem myndast við að færa myndavélina frá sjóndeildarhring.

S.s. þegar horft er á kúlu þá er hún 360°x180° þegar horft er beint upp þá þarf ekki nema 1 mynd til þess að fanga þessar svokölluð 360° í +90° og -90° sjónsviði.

Ef við gerum slump reikning á þetta og við erum með 25% "overlap" við sjóndeildarhring, þá erum við auðveldlega komin með 50% við 45° frá honum. Svo þegar mynd er tekin og sett saman og notuð t.d. Kúlulaga vörpun tegist á myndinni því lengra frá sjóndeildarhring því meira... Hægt að sjá vel myndir sem eru 360°x180° sem eru keyrðar út í forritum flatar, þá er t.d. efsti og neðsti pixel margfaldaður * breidd á myndinni, næsti er svo margfaldaður * breidd á mynd / 2 og svo framvegis...

Eftir þetta eða í raun fyrir þá þarf að skoða hversu gott gler er framáná vélinni, t.d. þessi 400mm linsa verður alveg hræðileg með 2x converter, t.d. með því að nota 300mm linsu fæst betri mynd heldur en á 400mm með 2x sem búið er að minka niður í sömu stærð, eða svona hér um bil allavegana.

Einnig þarf að horfa á veðurfar og hversu langt er hægt að sjá, t.d. ef það er horft á stóru byggingarnar í bakgrunni þá er eins og þær séu ekki í fókus, sem jú þær "eru" en vegna þess að sýnileikin berst ekki að myndavélinni lítur þetta svona illa út.

Hægt er svo sem að tala um þetta endalaust áfram svo sem að nota svona crop vél og pixel pitch-ið í henni er ekki sérstaklega gott.

Þetta gigapixla kapphlaup er löngu orðið mikið grín og finnst mér þetta farið að verða ágætt barasta.

Ég sjálfur hef tekið 50GP mynd fyrir töluverðu síðan, en það er ekki eitthvað sem ég hef áhuga á því að birta, enda var það í raun bara tæknileg tilraun, sem jú allt þetta dót er í raun farið að snúast um...

Vona þetta varpi aðeins ljósi á þessa að ég myndi telja langt undir 100GP mynd....

 

þar hafið þið það. Nú er bara að setjast og reikna :)

Kristján Logason ljósmyndari skrifar um ljósmyndun og sýnir myndir sýnar á www.aurora.is