Langar þig í Fuji x 100 núna
Það má með sanni segja að á síðasta Photokina hafi ein myndavél komið öllum nokkuð mikið á óvart, en það var Fuji Finepix X100 vélin sem er stafræn "rangefinder" vél með áfastri linsu. Vélin fór vel í hendi og lofar alveg einstaklega góðu. Eiginlega svo góðu að langt er síðan löngun hefur verið jafn mikil í nýja myndavél. Þeir sem eru vanir að handleika vélar sem þessar eins og gamlar og góðar Canon vélar af svipaðri stærð verða örugglega áfjáðir að ná sér í eina. Leica mönnum þykir Fuji X100 kanski aðeins of lítil og létt og ókostur að ekki skuli hægt að skipta um linsu. En hvað með það, nú er hægt að panta eina
Eini gallinn er bara sá að vélin er ekki farin í framleiðslu og ekki er ljóst með endanlega útkomu vélarinnar og hvað hún keur til með að innihalda.
Það hafa verið nokkrar breytingar á vélinni frá því á photokina og lofa þær allar góðu. Nú hefur verið boðað að vélin verði aðal sýningaratriðið á Focus on Imaging í Birmingham í Englandi nú í vor.
Hvað um það orð eru farin að hvissast og markaðsherferð hafin því nú er hægt að Panta vélina í gegnum Adorama og þarf ekki að borga nema 1200 dollara sem er um 800 dollurum minna en fyrir Leica x1.
Það er því um að gera að snara út peningunum, panta eina ....og vona svo að hún standi undir væntingum.
Viðbót! Fuji finepix x100 hefur nú einnig poppað upp á heimasíðu B&H





