Leifur Þorsteinsson í Sjónarhorni

Leifur Þorsteinsson í Sjónarhorni

Leifur Þorsteinsson Ljósmyndari er næsti gestafyrirlesari í fyrirlestraröð Ljósmyndarafélags Íslands og Þjóðminjasafnsins. Leifur mun í þessum fyrirlestri ræða mannlfs og götulífsmyndir sýnar frá Kaupmannahöfn.

Leifur hefur lengi verið í fremstu röð Íslenskra ljósmyndara og ófáir sem fengið hafa visku sína úr hans óendanlega brunni. Það er mikill fengur fyrir ljósmyndarafélagið að fá Leif til frásagnar og ljóst að hér verður örugglega stórskemtileg stund sem hægt er að hvetja alla til að mæta á.