Leifur Þorsteinsson og Landssmiðjan

Tag: Sýningar
Ein myndanna frá Landsmiðjunni á sýningu Leifs Þorsteinssonar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur

 

Leifur Þorsteinsson, ljósmyndari, sýnir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 15 myndir af Landsmiðjunni gömlu sem nú er horfin. Myndin er annar hluti sýningarraðar Leifs, Sýningarröð 2011.

Leifur tók myndirnar árið 1966, fyrir Iðnsýningu Reykjavíkur og tók þá líka myndir af eldsmiðjunni, en þær voru ekki sýndar á Iðnsýningunni, þar sem sá verkþáttur þótti gamaldags. Myndirnar sýna bæði menn að störfum, sem og vinnuaðstöðuna í Landsmiðjunni. Sýningin verður opnuð í dag og stendur til 8. maí.

Leifur er einn af stofnendum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og einn af brautryðjendum í auglýsinga- og iðnaðarljósmyndunar á Íslandi. Hann hefur unnið ötullega að fræðslu um ljósmyndun, fyrst á vegum Ljósmyndarafélagsins, síðar í Iðnskólanum og Listaháskólanum.