Ljósmyndakaffi Ljósmyndasafns Reykjavíkur
Leifur Þorsteinsson.Frá sýningu Leifs Þorsteinssonar í ljósmyndasafni Reykjavíkur
Ljósmyndakaffi Ljósmyndasafns Reykjavíkur verður haldið næstkomandi föstudag klukkan 12. Í fyrstu lotu munu ljósmyndararnir Guðmundur Ingólfsson, Bára og Sissa spjalla við Leif Þorsteinsson um ljósmyndun. Ætlunin er að halda fjögur ljósmyndakaffi á næstu mánuðum þar sem einn ljósmyndari er tekinn fyrir og spurður út úr af hinum ljósmyndurunum sem nefndir eru hér að framan. Boðið verður upp á kaffi eins og heitið gefur til kynna.
Leifur Þorsteinsson er einn af brautryðjendum auglýsinga- og iðnaðarljósmyndunar á Íslandi. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1933 og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955 og hélt að því loknu til Kaupmannahafnar. Leifur nam eðlis- og efnafræði í þrjú ár áður en hann sneri sér alfarið að ljósmynduninni og stóð fyrir vikið feti framar samnemendum sínum í myndvinnslunni. Hann komst á samning hjá ljósmyndaranum Jan Selzer og vann meðfram námi hjá honum við gæðaeftirlit, efnavinnslu, mælingar á lit og önnur tilfallandi verkefni. Leifur hóf feril sinn hér á landi árið 1962 þegar hann kom aftur heim frá Danmörku.
Íslensk auglýsinga- og iðnaðarljósmyndum var komin skammt á veg hérlendis þegar Leifur flutti aftur heim og að hans sögn „algjörlega óplægður akur á Íslandi og skilningur augljóslega heldur ekki fyrir hendi á þessari nýju tegund ljósmyndunar. Þetta var iðulega þannig að viðskiptavinurinn kom seinnipart dags og bað um að láta gera fyrir sig klisju til að setja í Morgunblaðið og hún átti að vera tilbúin morguninn eftir. Menn fengu ekki borgað fyrir þetta í peningum heldur í vöruskiptum.“
Leifur er einn af stofnendum Ljósmyndasafnsins sem síðar varð Ljósmyndasafn Reykjavíkur og hefur unnið ötullega að fræðslu um ljósmyndun, fyrst á vegum Ljósmyndarafélagsins, síðar í Iðnskólanum og Listaháskólanum. Þekking Leifs á efnafræðilegri hlið ljósmyndunar, varðandi lit og litvinnslu, er mikils metin og hefur hann verið lærifaðir margra íslenskra ljósmyndara á því sviði sem og í tölvu- og myndvinnslu.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur / The Reykjavík Museum of Photography
Grófarhús, Tryggvagata 15, 6 hæð / 6th floor
101 Reykjavík, Iceland
Sími: 411-6390 / Tel: +354-411-6390
Fax: +354-411-6399
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
www.photomuseum.is





