Phase One setur á markað IQ180

Tag: bakstykki, Fréttir, Myndavélar, PhaseOne
Phase One IQ180

Rétt þegar menn héldu að megapixlastríðiðnu væri lokið í bili þá sendir danski myndavéla og bakstykkjaframleiðandinn Phase One frá sér tilkynningu um að nýtt bakstykki með heila 80 megapixla sé á leið á markað.


Þróun og breytingar á markaðinum fyrir milliformats vélar og bakstykki hefur ekki verið jafn ör eins og í tækni 35mm og minni véla enda sá markaður mun minni og menn fara því varlegar í sakirnar. Það er ekki þar með sagt að ekki sé eitthvað að gerast og í raun má segja að hér eigi við að góðir hlutir gerast hægtÞess ber þó að gæta að í staðinn þá hefur verð á bakstykkjum ekkert minnkað þó svo aðilar eins og Mamiya (nú í samvinnu/eigu phase one) hafi reynt að koma með ódýrt bakstykki á markaðinn. 10.000 dollarar eru miklir peningar en það er byrjunarverð sem menn eru að tala um í verði bakstykkja.


Þá hefur sú staðreynd að betri 35mm stafrænar vélar gefa nú ódýrari bakstykkjum ekkert eftir í gæðum en eru mun ódýrari, ekki breytt miklu Markaður fyrir milliformats myndavélar og bakstykki er jú nokkuð annar en í Dslr vélum eins og Canon 1Ds Mk lll eða Nikon D3x SLR og sá möguleiki að geta sett bakstykkið á myndavél með tilt/shift möguleika ásamt ýmsum öðrum meðfærileka til línu og hliðrunar leiðréttinga gerir vélarnar ákjósanlegar fyrir ýmsa atvinnumenn. Það er líka ólíku saman að bera skrá úr 35mm vél eins og Canon 5d MK ll, Nikon D3100, Hasselblad H4D 50 eða þá þessari nýju vél IQ80 frá Phase One


Eins og áður sagði þá hefur þessi nýja IQ180 vél frá Phase One, 80-megapixla upplausn sem gefur um 12.5-f-stop í dynamic range, hún hefur einnig hágæða skjá á bakinu og gagnaflutningur fer fram í gegnum USB 3.0


Myndflagan er af CCD gerð og framleidd af Dalsa, en Phase One segir að hún sé annarrar gerðar en í Leaf bakstykkinu þeirra Leaf Aptus-II sem kom á markað í september síðastliðinnStærð myndflögunnar er 53.9x43.4mm; meðan 35mm myndavél hefur 36x24mm sem rammastærð og eru myndir teknar í 16bitum á meðan Dslr vélar taka í 14 bitum eða 12 bitum þær ódýrari.


Þessi staðreynd ætti tæknilega að gefa betri tónaskala í myndefni. Ljósnæmi myndflögunar er gefinn skalinn ISO 50 til ISO 800 en með svo kölluðum Sensor Plus er hægt að „pressa“ ljósnæmið á skalanum frá ISO 200 til 3200


 


 


Hægt er að lesa nánar um bakstykkið á www.phaseone.com